Handboltamaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann greindi frá þessu í Sportinu í dag.
Ásgeir Örn, sem er 36 ára, er í hópi leikjuhæstu leikmanna íslenska landsliðsins frá upphafi. Alls urðu landsleikirnir 247 og mörkin 414. Hann var hluti af íslenska liðinu sem vann silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki tveimur árum síðar.
Ásgeir Örn, sem spilaði bæði sem hægri skytta og hægri hornamaður, tók þátt á sextán stórmótum. Aðeins Guðjón Valur Sigurðsson hefur leikið á fleiri stórmótum með Íslandi. Fyrsta stórmót Ásgeirs Arnar var EM 2004 í Slóveníu og það síðasta EM 2018 í Króatíu.
Hann tók þátt á átta Evrópumótum, fimm heimsmeistaramótum og þrennum Ólympíuleikum. Ásgeir Örn skoraði 127 mörk í 96 leikjum á stórmótum.

Þá var Ásgeir Örn fyrirliði íslenska U-18 ára liðsins sem varð Evrópumeistari 2003. Hann var markakóngur mótsins og valinn í úrvalslið þess ásamt Arnóri Atlasyni.
Ásgeir Örn hóf ungur að leika með Haukum og varð Íslands- og bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili með liðinu (2000-01). Hann vann alls tíu stóra titla með Haukum áður en hann gekk í raðir þýska liðsins Lemgo 2005.
Ásgeir Örn var valinn efnilegasti leikmaður efstu deildar 2003 og fékk Valdimarsbikarinn tveimur árum síðar.
Á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku vann Ásgeir Örn EHF-bikarinn með Lemgo. Hann yfirgaf félagið 2007 og fór til GOG í Danmörku. Hann lék einnig með Faaborg þar í landi áður hann færði sig aftur til Þýskalands 2010 og gekk í raðir Hannover-Burgdorf.

Þar lék Ásgeir Örn í tvö ár. Árið 2012 gekk hann í raðir franska stórliðsins Paris Saint-Germain þar sem hann vann tvo stóra titla á jafnmörgum árum.
Ásgeir Örn lék svo með Nîmes í Frakklandi frá 2014 til 2018 þegar hann kom aftur heim í Hauka.
Hann varð deildarmeistari með Haukum á þarsíðasta tímabili auk þess sem liðið komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar voru svo í 4. sæti Olís-deildarinnar þegar keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins.
Afrekaskrá Ásgeirs Arnar
Haukar
4x Íslandsmeistari (2001, 2003, 2004, 2005)
2x bikarmeistari (2001, 2002)
5x deildarmeistari (2002, 2003, 2004, 2005, 2019)
Lemgo
EHF-meistari (2006)
Paris Saint-Germain
Frakklandsmeistari (2013)
Bikarmeistari (2014)
Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.