Útkall eftir að gervitunglamynd sýndi hugsanlega olíumengun Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. apríl 2020 13:52 Mengunin var minni en óttast var fyrst. Mynd/Landhelgisgæslan
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gær eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rauð olíumengunarviðvörun með gervitunglamynd frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu í gærmorgun. Samkvæmt myndinni var olíumengunin um 50 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Athugun Landhelgisgæslunnar leiddi í ljós að þrír togarar höfðu farið um svæðið á leið sinni til veiða á Reykjaneshrygg aðfaranótt miðvikudags, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Eftirlitsflugvélin TF-SIF var þegar í stað kölluð út og Umhverfisstofnun gert viðvart. Áhöfn flugvélarinnar myndaði svæðið og athugaði hversu umfangsmikil mengunin væri. TF-SIFMynd/Landhelgisgæslan Við skoðun kom í ljós að um mengunin var minni en óttast var í fyrstu en olíuslikja var þó sjáanleg. Áhöfnin á TF-SIF setti sig í samband við skipstjóra togaranna sem könnuðust ekki við að hafa misst olíu í sjóinn. Landhelgisgæslan gerði skipstjórunum ljóst að vel væri fylgst með lögsögunni úr lofti og á sjó. Mengunin var ekki lengur sjáanleg þegar flogið var yfir staðinn á bakaleiðinni.
Landhelgisgæslan Sjávarútvegur Umhverfismál Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Erlent Fleiri fréttir Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma „Enn sem er komið er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Munu geta aðgreint fanga eftir alvarleika brota í nýju fangelsi Sjá meira