Skoðun

„Um­burðar­lyndi“ ofar mannéttindum?

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Á dögunum birti DV umfjöllun um svokallað „heiðurstengt ofbeldi“ á Íslandi sem er ofbeldi beitt af geranda vegna þess að hann telur fórnarlambið, í flestum tilvikum kvenkyns, á einhvern hátt hafa vegið að heiðri og orðspori sínu eða fjölskyldu sinnar. Í umfjölluninni kom fram að mál hefðu komið inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu þar sem grunur léki á heiðurstengdu ofbeldi. Rætt var við sérfræðinga hjá lögreglunni og Reykjavíkurborg sem gagnrýna aðgerðarleysi í málaflokknum og því m.a. velt upp hvort viðleitni okkar til að bera virðingu fyrir ólíkum menningarheimum spili þar inn í.

Á Íslandi búum við við þau forréttindi að staða mannréttinda er góð í alþjóðlegum samanburði. Það á við um flest ríki í hinum vestræna heimi, þótt sums staðar hafi nýlega orðið bakslag. Í þessum ríkjum höfum við fest í sessi grunngildi og mannréttindi eins og frelsi, jafnrétti og virðingu fyrir náunganum. Það eigum við að þakka langri og strangri baráttu þeirra sem ruddu brautina fyrir okkur. Hins vegar er hætt við að við sofnum á verðinum þegar þar er komið; að við verðum of værukær og tökum þessum mikilsverðu réttindum okkar sem sjálfsögðum.

Heiðurstengt ofbeldi tíðkast í samfélögum þar sem feðraveldi ríkir og réttindi kvenna eru takmörkuð. En í kringum fimm þúsund konur eru fórnarlömb heiðursmorða á hverju ári. Í þessum samfélögum er við lýði sú skaðlega menningarhefð að það sé hlutverk karlmanna að vernda „hreinleika“ og ímynd kvenna í fjölskyldunni. Þær kröfur eru sjaldnast meitlaðar í stein heldur byggja á tilfinningum og skynjun karlmannanna. Þessi hefð er ekki bundin við ákveðinn heimshluta þótt hún sé útbreiddust í Miðausturlöndum og Suður-Asíu. Slíkt ofbeldi er nú orðið vel þekkt t.a.m. í Bretlandi og á Norðurlöndunum þangað sem innflytjendur hafa borið hefðirnar með sér. Í fyrrgreindri umfjöllun kemur fram að ofbeldið hér sé síður en svo bundið við fólk sem er nýkomið hingað frá öðrum menningarheimum heldur nægi að sterk tengsl séu við upprunalandið. Héðan þekkjum við allflest eldri landsþekkt dæmi um slíkt.

Þessi umfjöllun er brýn og þörf áminning. Hér eiga allir að fá sömu skilaboðin um að kynbundið ofbeldi sé ekki liðið. Við höfum haft mikið fyrir að komast á þann stað að mannréttindi séu talin algild og ófrávíkjanleg. Við megum aldrei gefa afslátt af þeim, síst í nafni umburðarlyndis. Enda ekkert umburðarlyndi í því fólgið að umbera kúgun og afbrot gegn öðrum. Þvert á móti. Slíkt „umburðarlyndi“ er þegar betur er að gáð ekkert annað en yfirlæti eða mannfyrirlitning.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður og aðstoðarmaður utanríkisráðherra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×