Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Frost verður á bilinu núll til tólf stig, kaldast fyrir norðan, en hiti kringum frostmark sunnan- og vestanlands að deginum.
Á morgun er spáð suðaustan átta til átján metrum á sekúndum þar sem hvassast verður vestantil.
„Víða dálítil él, en léttskýjað á Norðurlandi. Líklega svipað veður áfram á föstudag, en þó gæti snjóað um tíma við vesturströndina.“
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag: Suðaustan 10-18 m/s, en hægari vindur um landið A-vert. Víða lítilsháttar él og líkur á snjókomu um tíma við V-ströndina, en yfirleitt bjart veður N- og NA-lands. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-til, en frostlaust syðst á landinu.
Á laugardag og sunnudag: Austlæg átt, skýjað með köflum og dálítil él A-lands og við S-ströndina. Frost yfirleitt 0 til 8 stig.
Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðaustanátt með éljum N-til á landinu. Kalt í veðri.