Ekkert hefur spurst til Johns Snorra og samferðamanna hans, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr, síðan á föstudag. Veður hefur hamlað leit á K2 síðustu daga en stefnt var að því að halda leit áfram í dag.
Saikaly fylgdi John Snorra og Ali Sadpara á K2 nú í janúar. Hann rifjar upp að sjálfur hafi hann varla verið lentur á fjallinu þegar John Snorri dreif sig til leitar að göngumanni sem saknað var á nærliggjandi fjalli. Maðurinn hét Alex Goldfarb en hann fannst látinn 18. janúar síðastliðinn. John Snorri sagði Vísi frá leitinni að Goldfarb í viðtali daginn áður.
„Það var lýsandi fyrir manninn sem hann [John] hafði að geyma. Hugrakkur, djarfur og samúðarfullur,“ skrifar Saikaly í færslu sinni í dag. Þá lýsir hann ást Johns Snorra á Pakistan og væntumþykju hans í garð Sadpara-feðganna, Ali og Sajid. John Snorri hafi jafnframt verið yfir sig ánægður með myndina sem fylgir fréttinni, sem Saikaly tók af honum við rætur K2.
„Hann var svo spenntur yfir þessari mynd og sagði ítrekað: Þegar ég kemst á tind K2 sé ég þessa mynd fyrir mér á veggspjaldi á flugvellinum á Íslandi.“
Elskaði Línu og börnin framar öllu
Þá segir Saikaly frá því að þeir John Snorri hafi varið miklum tíma saman síðustu vikur; hlegið saman, skipulagt heimildarmyndina og átt í djúpum samræðum um lífið og tilveruna.
„En það sem heillaði mig mest í fari Johns var hjartalag hans. Samkenndin sem bjó í honum, hversu annt honum var um aðra og aðallega ástin sem hann bar í brjósti til Línu, eiginkonu sinnar, og sex barna sinna.“
Saikaly lýsir því að hann hafi tekið upp tilfinningaþrungið atriði fyrir myndina þar sem John hafi rætt um fjölskyldu sína af mikilli væntumþykju.
„Stuðningurinn frá stórkostlegu fjölskyldunni hans, sem hann hafði í svo miklum heiðri, hafði mikil áhrif á mig,“ segir Saikaly.
„Hann var gimsteinn í mannsmynd og einn góðhjartaðasti og ótrúlegasti maður sem ég hef á ævinni kynnst. Tími okkar saman var stuttur en hann risti djúpt. Það var heiður að fá inngang í innsta hring og finna fyrir töfrunum sem John skapaði fyrir Ísland og Pakistan. Mig dreymir enn um að hann komist lífs af. Ef það er á færi einhvers þá er það Johns Snorra.“