Segir að Grealish sé eins og réttfættur Messi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. febrúar 2021 15:30 Jack Grealish hefur verið einn af bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. getty/Shaun Botterill Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa, segir að samherji sinn, Jack Grealish, minni um margt á sjálfan Lionel Messi. „
Hann er hæfileikaríkasti leikmaður sem ég hef séð. Hann tapar boltanum aldrei. Þegar ég gríp fyrirgjöf og sé Grealish á ferðinni veit ég að við munum eiga skot á mark eða fá hornspyrnu,“ sagði Martínez. „Hann leikur á tvo eða þrjá leikmenn. Ég sé bara Messi með hægri fót! Þegar hann er með boltann geturðu ekki náð honum af honum.“ Grealish hefur átt afar gott tímabil með Villa. Í 21 leik í ensku úrvalsdeildinni hefur hann skorað sex mörk og gefið tíu stoðsendingar. „Ég held að hann sé hæfileikaríkasti enski leikmaðurinn. Ég er hissa að hann hafi ekki spilað fleiri landsleiki,“ sagði Martínez um Grealish sem hefur leikið fimm leiki fyrir enska landsliðið. „Messi er Messi, sá besti allra tíma. En á æfingum, þegar Grealish er með boltann vill enginn tækla hann. Hann getur gert allt. Þetta er eins og þegar ég æfi með Messi hjá landsliðinu, þá vill enginn snerta hann.“ Martínez hefur leikið vel með Villa og haldið hreinu í ellefu af 21 leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Argentínumaðurinn kom til Villa frá Arsenal síðasta haust.
Enski boltinn Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti „Ég trúi þessu varla“ Sport United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Sjá meira