„Þetta hlýtur að enda með einhverjum ósköpum“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa 1. mars 2021 20:49 Sæmundur Þórðarson, íbúi á Vatnsleysuströnd, segist aldrei hafa upplifað slíka skjálftahrinu og ríður nú yfir Reykjanesskagann. Vísir Engin rýmingaráætlun er til fyrir Reykjanesbæ og Voga, fari að gjósa, en unnið er að gerð hennar.
Greinileg gliðnun hefur myndast í landslagi suður af Keili. Þetta eru um þrjátíu sentímetrar sem ekki er talið að hægt sé að skýra aðeins með jarðskjálftavirkni. Málið er í skoðun hjá Veðurstofunni. Grindavíkurbær lét gera sjálfstæða rýmingaráætlun þegar jarðhræringar fóru að gera vart við sig fyrir um ári - en hættan hér er líka talin nokkuð meiri en annars staðar á Reykjanesinu. Hér finna íbúar fyrir skjálftunum af fullum krafti og en ekki hafa borist upplýsingar um slys eða skemmdir. Loftmynd af svæðinu þar sem skjálftarnir hafa átt upptök sín.iceland360vr/skjáskot Samkvæmt hraunhermilíkani er líklegast að norðurhluti mið Reykjanesskagans verði undir, fari að gjósa. Líkur á að hraun fari til suðurs hafa hins vegar minnkað. Unnið er að gerð rýmingaráætlana í Reykjanesbæ og í Vogum en slíkar áætlanir eru til í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu. „Ef það þarf að rýma svæðið, það fer alltaf eftir því hvernig gos yrði ef út í það færi, sem við auðvitað vonum ekki, það er mjög fjarlægur möguleiki. En við þurfum að vera tilbúin og þá að færa til fólk ef ástandið yrði þannig,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Vísir Þá er erlenda samfélagið á Suðurnesjum nokkuð stórt en þar vottar fyrir ótta hjá fólki. Unnið er að gerð leiðbeininga á fleiri tungumálum. „Við skynjum ótta á meðal þeirra. Það eru hér útlendingar sem hafa aldrei upplifað jarðskjálfta áður,“ segir Kjartan. Jákvætt og eðlilegt að pakka í töskur Íbúar á Suðurnesjunum taka skjálftunum með ró en þó er fólk sem hefur pakkað í töskur og tilbúið að þurfa að yfirgefa heimili sín. „Ég veit ekki um neinn sem hefur forðað sér en ég veit um einhverja sem hafa haft tilbúnar einhverjar töskur, kannski lyf og eitthvað slíkt sem fólk er háð, sem er bara jákvætt og eðlilegt. Aðalatriðið og mikilvægasta í þessu öllu saman er að fylgja leiðbeiningum,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga.Vísir/Egill Hræddur við lækkun og hækkun landsins Mikil eldvirkni hefur verið á Reykjanesskaga en yfir þúsund ferkílómetrar af landi eru undir hrauni. Þó engin gos hafi verið síðan seint á þrettándu öld hafa verið hér miklar jarðhræringar og alltaf viðbúið að fari að gjósa. Það veit Sæmundur Þórðarson sem hefur lifað þá tímana tvenna, en hann er níutíu og fjögurra ára og hefur búið á Vatnsleysuströnd frá árinu 1932. Hann segist hafa upplifað öflugri jarðskjálfta - en aldrei hrinur eins og þessar. „Til dæmis þegar þetta hús var byggt, þá komu dálitlir skjálftar hérna 1951 eða 1953. Það var meira en þetta sem var núna hugsa ég en það var bara þessi staki skjálfti,“ segir Sæmundur. Hann hefur ekki upplifað hrinur eins og þessar. „En þetta er í gangi á stóru svæði, það hlýtur að enda með einhverjum ósköpum.“ Sjávarstaða muni breytast ef til goss kemur - sem sé sviðsmynd sem verði að taka inn í reikninginn. „Þetta er náttúrulega vá í sjálfu sér og þetta getur breytt talsverðu fyrir okkur ef eitthvað skeður sem við sjáum ekki fyrir. Ég er alveg eins hræddur við lækkun eins og hækkun. Ef að húsin okkar myndu lækka eitthvað hérna væri sjórinn kominn upp að dyrum,“ segir Sæmundur Þórðarson, íbúi á Vatnsleysuströnd.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Reykjanesbær Tengdar fréttir Kvíði og hræðsla eðlileg viðbrögð við jarðhræringum Sálfræðingur segir kvíða og hræðslu vegna jarðhræringa vera ósköp eðlileg viðbrögð við jarðhræringum eins og þeim sem hafa verið á Reykjanesskaga upp á síðkastið, og fundist víðar um land. 1. mars 2021 20:20 Settu upp beint streymi af Keili ef það skyldi gjósa Staðarmiðillinn Víkurfréttir í Reykjanesbæ sendir nú út beint streymi af fjallinu Keili, eftir að fregnir bárust af því að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga gætu verið að aukast. Streymið er tekið upp út um glugga á skrifstofuhúsnæði á fjórðu hæð, sem ritstjórinn segir hafa vaggað nánast stanslaust síðustu daga. 1. mars 2021 18:46 Líklegasta skýring á jarðskjálftunum að kvikuinnskot sé að myndast Vísindaráð almannavarna telur líklegustu skýringu jarðskjálftavirkninnar á Reykjanesskaga undanfarna daga vera þá að kvikugangur sé að myndast undir svæðinu þar sem mest jarðskjálftavirkni hefur verið. Ráðið skoðaði gervihnattamyndir sem bárust í dag og sýnir úrvinnsla úr þeim myndum meiri færslu en áður hefur orðið vart við. 1. mars 2021 18:08 Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira
Kvíði og hræðsla eðlileg viðbrögð við jarðhræringum Sálfræðingur segir kvíða og hræðslu vegna jarðhræringa vera ósköp eðlileg viðbrögð við jarðhræringum eins og þeim sem hafa verið á Reykjanesskaga upp á síðkastið, og fundist víðar um land. 1. mars 2021 20:20
Settu upp beint streymi af Keili ef það skyldi gjósa Staðarmiðillinn Víkurfréttir í Reykjanesbæ sendir nú út beint streymi af fjallinu Keili, eftir að fregnir bárust af því að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga gætu verið að aukast. Streymið er tekið upp út um glugga á skrifstofuhúsnæði á fjórðu hæð, sem ritstjórinn segir hafa vaggað nánast stanslaust síðustu daga. 1. mars 2021 18:46
Líklegasta skýring á jarðskjálftunum að kvikuinnskot sé að myndast Vísindaráð almannavarna telur líklegustu skýringu jarðskjálftavirkninnar á Reykjanesskaga undanfarna daga vera þá að kvikugangur sé að myndast undir svæðinu þar sem mest jarðskjálftavirkni hefur verið. Ráðið skoðaði gervihnattamyndir sem bárust í dag og sýnir úrvinnsla úr þeim myndum meiri færslu en áður hefur orðið vart við. 1. mars 2021 18:08