Skoðun

Sex sjokkerandi stað­reyndir um Ís­land

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Förum saman yfir 6 punkta sem lýsa Íslandi í dag.

  1. Það tekur meðalforstjórann í Kauphöllinni rúmlega einn dag að vinna sér inn mánaðartekjur öryrkjans, eldri borgarans eða þess atvinnulausa. Rúm dagslaun forstjórans eiga að duga hinum í einn mánuð.
  2. Ríkustu 10% Íslendinga eiga meira af hreinum eignum en allir hinir af þjóðinni, sem eru 90% landsmanna.
  3. Fjármagnstekjuskatturinn, sem er sá skattur sem hinir ríku greiða helst, er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum.
  4. Veiðileyfagjöldin, sem helst stóru útgerðirnar borga, lækkuðu um tæp 60% á þremur árum. Árlegur arður sem rennur beint í vasa útgerðarmannsins og fjölskyldu hans er hærri en veiðileyfagjöldin sem eigandi auðlindarinnar, þjóðin, fær.
  5. Nú búa allt að 35 þúsund Íslendingar við fátækt samkvæmt Hagstofunni. Af þeim eru 10 þúsund börn!
  6. Það hafa aldrei jafnmargir þurft nú að sækja sér mataraðstoð á Íslandi.

Fólk sem á allt og fólk sem á ekkert

Það er mjög margt fólk hér á landi sem þarf jafnvel að neita sér um læknisaðstoð og getur ekki veitt börnum sínum það sem jafnöldrum þeirra þykir sjálfsagt. Þetta fólk býr oft í vondum og jafnvel hættulegum húsum.

Hér er því fólk sem á allt og hér er fólk sem á ekkert.

Þetta finnst mér að stjórnmál ættu að snúast um.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×