Rafíþróttir

Í beinni: Hvort kemst Tækni­­­skólinn eða Verslunar­­skólinn í úr­slit?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
FRÍS

Klukkan 18.30 mætast Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands í fyrri undanúrslitaviðureign Framhaldskólaleikunum í rafíþróttum. Eftir viku mætast svo Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við Hamrahlíð.

Keppendur spila í þremur tölvuleikjum: FIFA 21, Rocket League og CS:GO. Til að komast í úrslit þarf lið að fá tvö stig, eða með öðrum orðum að vinna tvær af þremur viðureignum.

Í skotleiknum CS:GO eru fimm saman í liði, í fótboltakappakstursleiknum Rocket League þrír saman í liði og í fótboltaleiknum FIFA 21 eru tveir saman í liði.

Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá viðureign kvöldsins. Verður hún sýnd beint á Twitch-síðu Rafíþróttasambands Íslands sem og á Stöð 2 E-Sport. Kynnar kvöldsins eru ekki af verri endanum en þau Kristján Einar Kristjánsson, Donna Cruz, Króli og Egill Ploder stýra herlegheitunum.






×