Svar við bréfi Helgu Kári Stefánsson skrifar 10. apríl 2021 19:53 Helga Vala Helgadóttir ég þakka þér fyrir hófstillt og fallegt bréf til mín. Ég vil hins vegar leggja á það áherslu að ég er að mestu ósammála efni bréfsins þótt ég nemi í því fegurð og velvilja í minn garð og þjóðarinnar allrar. Það var mál manna að það þyrfti að skerpa á lagaheimildum til þess að skerða frelsi í sóttvarnarskyni. Reynsla síðasta árs hefur meðal annars sýnt að það eru nokkur brögð að því að fólk virði ekki sóttkvíarskyldu og fari á flakk um samfélagið áður en tíminn er liðinn. Stóran hundraðshluta smita sem hafa fundist hér á landi á síðustu mánuðum má rekja til þess konar hegðunar af hálfu sumra sem komu frá hættusvæðum. Hugmyndin var meðal annars sú að breytt sóttvarnarlög veittu heimild til þess að skikka fólk í sóttkví samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu á henni. Þetta var gert í lögunum nýbreyttu. Sóttkví er skilgreind sem aðgerð til þess að vernda samfélagið gegn smithættu sem kann að stafa af þeim sem eru settir í hana. Hún byggir á því að halda einstaklingnum einangruðum frá öðrum í samfélaginu þannig að hann geti ekki smitað þá. Það er alveg ljóst að heimasóttkví fyrir þá sem koma frá löndum þar sem er mikið um smit hefur ekki uppfyllt þau skilyrði sem hin alþjóðlega skilgreining gerir ráð fyrir. Við erum með mikið af gögnum sem sýna þetta. Þar af leiðandi nægði ekki að hleypa fólki heim til sín og sóttvarnaryfirvöld urðu að grípa annarra ráða til þess að sóttkví sem fólk væri sent í væri í raun sóttkví en ekki eitthvað allt annað. Hin alþjóðlega skilgreining á sóttkví gerir ekki ráð fyrir því að hún sé í heimahúsi eða í sérstöku húsi né stangast heimahúsið eða sérsaka húsið á við skilgreininguna. Það er hins vegar grundvallaratriði að þær aðferðir sem er beitt komi í veg fyrir smit frá þeim sem í sóttkví dvelja berist út í samfélagið. Það var að mörgu leyti sjálfsagt að reyna að skikka fólk í sóttkví heima hjá sér í upphafi faraldurins en nú hefur komið í ljós að þegar um er að ræða fólk sem kemur til landsins frá svæðum þar sem mikið er um smit þá dugar það ekki til. Í þeim tilfellum er heimasóttkvíin ekki sóttkví heldur misheppnuð tilraun til hennar. Þess vegna gripu sóttvarnaryfirvöld til annarra ráðstafana og það er ekkert í endurbættum sóttvarnarlögunum sem bannar það. Þau skilgreina sóttkví í samræmi við alþjóðlegar skilgreiningar og veita engan afslátt af þeim. Það er ekki bara heimild í lögunum til þess að beita sóttkví heldur er gert ráð fyrir því. Víkur nú sögunni að þeim dómi í héraði að það hafi verið ólöglegt að skikka farþega frá hættusvæðum í sóttkví í herbergjum á Fosshóteli við Þórunnartún. Sá dómur byggði að mestu eða öllu á 13. málsgrein, 1.greinar, 1. kafla laganna sem er svona: 13. Sóttvarnahús: Staður þar sem einstaklingur, sem ekki á samastað á Íslandi eða getur af öðrum sökum ekki eða vill ekki einangra sig í húsnæði á eigin vegum, getur verið í sóttkví eða einangrun vegna gruns um að hann sé smitaður af farsótt eða ef staðfest er að svo sé. Í þessari málgrein er ekki kveðið svo á um að sóttvarnaryfirvöld hafi ekki heimild til þess að skikka fólk í sóttkví hvar svo sem þau telja nauðsynlegt heldur einungis gefið í skyn að ef sóttvarnaryfirvöld telji heimasóttkví uppfylla skilyrði sóttkvíar og einhver geti ekki eða vilji ekki fara í heimasóttkví þá sé fyrir hendi staður fyrir hann. Þessi málsgrein lýtur að skilgreiningu á einni af mörgum útfærslum á sóttkvíarhugmyndinni sem verða að vera til staðar þegar tekist er á við farsótt sem skiptir stöðugt um ham. 12. málsgreinin sem er lykill að málinu er svona: 12. Sóttkví: Takmörkun á athafnafrelsi og/eða aðskilnaður einstaklinga sem grunur leikur á að hafi verið útsettir fyrir smiti en eru ekki veikir eða grunsamlegs farangurs, gáma, farartækja eða vöru frá öðrum eða öðru á þann hátt sem kemur í veg fyrir hugsanlega útbreiðslu sýkingar eða mengunar . Hér er hvergi minnst á að sóttkví eigi að vera eða verði að vera heima hjá einstaklingnum, enda væri það hvorki í samræmi við alþjóðalega skilgreiningu á sóttkví né hefð við framkvæmd. Það er einungis sagt að hún eigi að vera á þann hátt að hún komi í veg fyrir hugsanlega útbreiðslu sýkingar. Sóttvarnaryfirvöld hafa á síðustu mánuðum aflað gagna sem sýna fram á, svo ekki verður um villst, að þegar um er að ræða fólk sem kemur frá löndum þar sem mikið er um smit þá kemur heimasóttkví ekki í veg fyrir hugsanlega útbreiðslu sýkingarinnar. Eina leiðin fyrir héraðsdómara til þess að komast að sinni niðurstöðu er að í 13. málsgreininni felist takmarkanir á beitingu sóttkvíar sem ekki er minnst á einu einasta orði. Ef þær takmarkanir findust einhvers staðar í 13. málsgrein væru 12. og 13. málsgreinarnar ósamrýmanlegar og ég trúi því varla að Alþingi hafi viljandi sett inn í lögin tvær grundvallarskilgreiningar sem stangast á. Hinn möguleikinn er sá að Alþingi hafi fundist það í stakk búið til þess að breyta skilgreiningunni á sóttkví en þess sjást engin merki. Að þessu sögðu Helga Vala Helgadóttir ætti þér að vera ljóst að með orðum mínum var ég ekki að tala niður héraðsdóm heldur veita honum það aðhald sem eðlilegt er þegar sá möguleiki er fyrir hendi að honum hafi orðið á mistök sem gætu vegið að heilsu landsmanna. Ég held að mistökin hafi legið í því að héraðsdómari hafi ekki gert sér grein fyrir því að sóttkví er grundvallarhugtak Svo er það þáttur Landsréttar í málinu sem er ekki beinlínis upp-örvandi. Málið var kært til hans og hann vísaði því frá vegna þess að þeir sem kærðu voru lausir úr sóttkví og byggir það á hefð sem hefur myndast við afgreiðslu mála þegar menn kæra gæsluvarðhalds-dómum og losna úr varðhaldi áður en máli þeirra eru tekið fyrir. Ég held að það hafi verið klaufaskapur að bera fyrir sig þá hefð vegna þess að þegar einstaklingi er sleppt úr varðhaldi er gengið út frá því sem vísu að hann sé ekki hættulegur samfélagi sínu. Dómurinn í héraði hleypti úr sóttkví fjölda manns sem voru samkvæmt skilningi sóttvarnaryfirvalda ógnvekjandi utan hennar. Þarna glataði Landsréttur tækifæri til þess að kveða upp dóm í prinsippmáli sem varðar allt samfélagið. Það er ljóst að í þessu máli brást dómsvaldið okkur og að öllum líkindum löggjafavaldið líka vegna þess að það hefði mátt taka af allan vafa í lagatextanum. Þetta er hins vegar eitt af þeim málum þar sem framkvæmdavaldið vildi vel en mátti sín lítils. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kári Stefánsson Mest lesið Harka af sér og halda áfram Hulda Jónsdóttir Tölgyes Skoðun Hæstaréttardómari kallar Gróu á Leiti til vitnis Heimir Már Pétursson Skoðun Allskonar núansar Lilja Kristín Jónsdóttir Skoðun Samúð Jón Steinar Gunnlaugsson Skoðun Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir Skoðun Úr hörðustu átt Rósa Guðbjartsdóttir!!! Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Frelsið er yndislegt þegar það hentar Jens Garðar Helgason Skoðun Dómskerfið reynir að þegja alla gagnrýni á sig í hel Jörgen Ingimar Hansson Skoðun Íslensk framleiðsla á undanhaldi - hver græðir? Guðmundur Þórir Sigurðsson Skoðun Magnús Karl Magnússon – öflugur málsvari Háskóla Íslands Arna Hauksdóttir,Þórarinn Guðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Töfrakista tækifæranna Hrefna Óskarsdóttir skrifar Skoðun Dómskerfið reynir að þegja alla gagnrýni á sig í hel Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun Frelsið er yndislegt þegar það hentar Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Borgaralegt og hernaðarlegt Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Áskorun til Reykjavíkurborgar um matvæli í leik- og grunnskólum Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind er síðasta von íslensks heilbrigðiskerfis – munum við grípa tækifærið? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Við erum ennþá hvalveiðiþjóð, hvenær ætlar ríkisstjórnin að grípa í taumana? Micah Garen skrifar Skoðun Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunngildum Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Samúð Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Allskonar núansar Lilja Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Íslensk framleiðsla á undanhaldi - hver græðir? Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar Skoðun Magnús Karl Magnússon – öflugur málsvari Háskóla Íslands Arna Hauksdóttir,Þórarinn Guðjónsson skrifar Skoðun Tungumálakort – leitin að tungumálaforðanum 2025 Renata Emilsson Peskova,Þorbjörg Halldórsdóttir,Kristín R. Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Byggjum meira á Kjalarnesi Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Hæstaréttardómari kallar Gróu á Leiti til vitnis Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Hugleiðingar um listamannalaun V Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Úr hörðustu átt Rósa Guðbjartsdóttir!!! Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Olíunotkun er þjóðaröryggismál Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Mokum ofan í skotgrafirnar Teitur Atlason skrifar Skoðun Kennarastarfið óheillandi... því miður Guðrún Kjartansdóttir skrifar Skoðun Jafnrétti sem leiðarljós í starfi Háskóla Íslands Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar Skoðun Skattspor ferðaþjónustunnar 184 milljarðar árið 2023 Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Kynskiptur vinnumarkaður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Við kjósum Magnús Karl Lotta María Ellingsen,Jón Ólafsson skrifar Skoðun Harka af sér og halda áfram Hulda Jónsdóttir Tölgyes skrifar Skoðun Mjólkursamsalan færir hundruð milljóna til erlendra bænda Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Gulur, rauður, blár og B+ Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Í hverjum bekk býr rithöfundur – Ísland, land lifandi ævintýra Einar Mikael Sverrisson skrifar Sjá meira
Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir Skoðun
Magnús Karl Magnússon – öflugur málsvari Háskóla Íslands Arna Hauksdóttir,Þórarinn Guðjónsson Skoðun
Skoðun Áskorun til Reykjavíkurborgar um matvæli í leik- og grunnskólum Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er síðasta von íslensks heilbrigðiskerfis – munum við grípa tækifærið? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Við erum ennþá hvalveiðiþjóð, hvenær ætlar ríkisstjórnin að grípa í taumana? Micah Garen skrifar
Skoðun Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Magnús Karl Magnússon – öflugur málsvari Háskóla Íslands Arna Hauksdóttir,Þórarinn Guðjónsson skrifar
Skoðun Tungumálakort – leitin að tungumálaforðanum 2025 Renata Emilsson Peskova,Þorbjörg Halldórsdóttir,Kristín R. Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Í hverjum bekk býr rithöfundur – Ísland, land lifandi ævintýra Einar Mikael Sverrisson skrifar
Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir Skoðun
Magnús Karl Magnússon – öflugur málsvari Háskóla Íslands Arna Hauksdóttir,Þórarinn Guðjónsson Skoðun