Blikar unnið tíu leiki í röð í Lengjubikar karla en engan titil Sindri Sverrisson skrifar 16. apríl 2021 11:30 Breiðablik vann alla leiki sína í Lengjubikarnum í ár, sem og í fyrra, en í bæði skiptin var mótið blásið af áður en úrslitaleikirnir höfðu verið spilaðir. vísir/hag Annað árið í röð verður keppni ekki kláruð í Lengjubikarnum í fótbolta. Stjórn KSÍ samþykkti á fundi í gær að stöðva keppnina og að Meistarakeppni KSÍ færi ekki fram í ár.
Keppni í Lengjubikarnum var frestað vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda og úr því að Íslandsmótið er að bresta á var ákveðið að ljúka keppninni ekki. Hefðbundnar æfingar voru leyfðar að nýju í gær eftir æfinga- og keppnisbann frá 25. mars. Í undanúrslitum Lengjubikars karla áttu Breiðablik og Keflavík að mætast, og Valur og Stjarnan. Svo merkilega vill til að Blikar hafa unnið tíu leiki í röð í Lengjubikarnum, í ár og í fyrra, án þess þó að vinna titil því í bæði skiptin hefur mótið verið blásið af án þess að meistari sé krýndur. Í Lengjubikar kvenna var riðlakeppni ekki lokið og ekki endanlega ljóst hvaða lið hefðu átt að mætast í undanúrslitum. Engin meistarakeppni Í Meistarakeppni KSÍ stóð til að efstu lið Pepsi Max-deildanna á síðasta ári myndu mætast, Valur og FH í karlaflokki en Breiðablik og Valur í kvennaflokki. Vanalega mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs í þessum leikjum, en bikarmeistarar voru ekki krýndir í fyrra. Nú er ljóst að leikirnir fara ekki fram. Keppni í Pepsi Max-deild karla hefst 30. apríl og keppni í Pepsi Max-deild kvenna hefst 4. maí.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð Sjá meira