
Stefnt er á að opna staðinn Monkeys í Hjartagarðinum í byrjun júlí og segist Óli vera bjartsýnn á það að sóttvarnaraðgerðum verði alveg aflétt fyrir þann tíma.
Smáréttastaður undir áhrifum frá Perú og Japan
Monkeys mun verða smáréttastaður með mikið úrval framandi rétta sem eru undir áhrifum frá Perú og Japan og kallast matarstíllinn sem mun ráða ríkjum Nikkei-matreiðsla.
„Nikkei-matreiðsla á uppruna sinn að rekja til seinni hluta 19. aldar þegar japanskir innflytjendur hófu að setjast að í Perú í töluverðum mæli. Þar blönduðust aldagamlar matreiðsluaðferðir frá Japan saman við fjölbreytta matarkistu Perú. Nikkei-matreiðsla sameinar það besta úr hvorri matargerð, virðingu fyrir hráefninu og samsetningu framandi bragðtegunda.“
Þannig voru japanskir réttir tengdir bragði og eldunaraðferðum frumbyggja í Perú á aðdáunarverðan hátt. Þessi blanda felur í sér það besta úr glæsilegri og fíngerðri matarmenningu Japana ásamt afburða fersku hráefni, blandað kryddtöfrum frá Perú.

Freyðandi vín frá öllum heimshornum
Á staðnum mun einnig verða glæsilegur kokteilbar og segir Óli mikla áherslu verða lagða á gott úrval léttvína í glasatali og þá sér í lagi freyðandi vín frá öllum heimshornum.

„Í sama húsnæði erum við að gera kokteilbar sem að verður með allt öðru sniði en aðrir staðir í bænum og hlakkar okkur mikið til að geta sagt meira frá honum. Við höfum parað hið fullkomna glas með hverjum rétti fyrir sig ásamt frábærum kokteilum,“ segir Óli Már.
Staðnum stýra þeir Gunnar Rafn Heiðarsson veitingastjóri, Snorri Sigfússon yfirmatreiðslumeistari og Martyn Lourenco yfirkokteilbarþjónn.
„Allir hafa þeir áratuga reynslu í veitingageiranum í því að skapa framúrskarandi upplifun gesta sinna svo að við erum mjög spenntir fyrir því að geta byrjað að taka á móti fólki,“ segir Óli Már að lokum.