Tilkynnt var um nýjan fríverslunarsamning við Bretland á föstudag. Utanríkisráðherra sagði þar um tímamótasamning að ræða sem markaði þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Samningurinn muni skipta sköpum fyrir bæði íslensk fyrirtæki og neytendur.
Gagnrýnin
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sendu hins vegar frá sér tilkynningu í dag þar sem gagnrýnt er að að háir tollar á einstaka sjávarafurðir í Bretlandi hamli því verulega að vinnsla þeirra sé rekstrarlega möguleg hér á landi. Þessu hefði mátt breyta í nýjum fríverslunarsamningi við Breta en einhverra hluta vegna hafi það ekki verið gert. Samningurinn valdi því vonbrigðum.
Einmanaleg barátta
Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra blæs á þessa gagnrýni.
„Það eru ekki margir stjórnmálamenn sem hafa unnið jafn ötullega að markaðsaðgengi Íslendinga á erlendum mörkuðum og ég. Ég gleðst mjög yfir því að einhverjir séu að vakna yfir mikilvægi þess að við höfum greiðan aðgang að erlendum mörkuðum. Þetta hefur verið nokkuð einmanalegt fram til þessa,“ segir Guðlaugur.
Ráðherra var afdráttarlaus í viðtali við Snorra Másson að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Samkvæmt heimildum fréttastofu telja sjávarútvegsfyrirtæki að þau hafi haft takmarkaðan aðgang að samningsviðræðunum við Breta einkum á lokametrunum. Guðlaugur lýsir hins vegar áhugaleysi hagsmunaaðila í þessum viðræðum.
„Þetta er mjög vanþroskuð umræða, ég hef gert mitt í þessu. Við skulum bara segja sem svo að þegar kemur umræða um þessi mikilvægu hagsmunamál okkar Íslendinga þá hefur ekki verið mikill áhugi á að tala fyrir því,“ segir Guðlaugur.