Hershöfðinginn fyrrverandi sem nú er sjötíu og níu ára gamall mun því sitja í fangelsi það sem hann á eftir ólífað. Áfrýjunarkröfu hans fyrir dómstólnum var vísað frá í öllum atriðum

Fulltrúar þeirra sem myrtir voru af Serbum í Bosníu biðu dómsins fyrir utan dómstólinn í Haag í Hollandi í dag. Þeirra á meðal voru fulltrúar samtakanna Mæður Srebrenica þar sem ein skelfilegustu fjöldamorðin og þjóðernishreinsanir á muslimum voru framin í stríðinu.
„Dómurinn hefur verið staðfestur en við kennum í brjóst um íbúa annarra byggðarlaga í landinu. Við vitum að þeir liðu þjáningar eins og við liðum í Srebrenica. Íbúarnir máttu þola hið glæpsamlega þjóðarmorð á sama hátt og við í Srebrenica,“ sagði Nura Begovic félagi í Mæðrum Srebrenica eftir að dómurinn var kveðinn upp í dag.