Gagnalekinn er sá stærsti sinnar tegundar, segir í frétt á vefsíðunni Cyber News en þar er því haldið fram að ríflega átta milljörðum lykilorða hafi verið lekið á netið. Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir að átta milljarðar séu líklega orðum ofaukið, þó lekinn sé vissulega gríðar stór. Þá sé ekki um nýjan leka að ræða heldur samansafn af gömlum lykilorðalekum.
„Ég held það séu mikið fleiri lekar, sem við vitum ekki um. Og fyrirtæki hlaupa ekkert endilega með það í fréttirnar, eða hreinlega vita ekki af þeim,“ segir Valdimar. Mikilvægt sé að fólk temji sér ákveðnar reglur í netöryggismálum. „Það er að vera með tiltölulega flókin lykilorð. Lengd lykilorða skiptir líka máli,“ segir hann.

Best sé að vera með átta stafi eða meira, hástafi og tákn og breytileg lykilorð á milli miðla. Fjölmörg dæmi eru um að fólk noti sömu lykilorðin, og sum eru vinsælli en önnur. „Við höfum séð það að Sumar2020 er mjög vinsælt,“ segir Valdimar, og þannig sé það eftir árstíðum.
Syndis vinnur nú að nýjum hugbúnaði sem gerir fólki kleift að athuga hvort það hafi lent í gagnaleka og hversu vel það hugar að eigin netöryggi. Búnaðurinn verður tekinn í notkun með haustinu en mun þó ekki koma í veg fyrir að gögnum fólks sé lekið. „Þetta er ekki spurning um hvort heldur hvenær.“