Sjö konur sitja fyrir í nýju herferðinni, þar á meðal Megan Rapinoe, sem er 35 ára gömul, bleikhærð fótboltakona sem barist hefur fyrir jafnrétti í fótboltabransanum, hin 17 ára gamla Eileen Gu, verðandi ólympíufari í skíðum og hin 29 ára gamla fyrirsæta Paloma Elsesser, sem hefur unnið sér það til frægðar að hafa verið fyrsta konan sem notar bandarísku fatastærðina 14 sem hefur fengið að sitja á forsíðu tískublaðsins Vogue.

Victoria‘s Secret hefur sætt töluverðri gagnrýni undanfarin ár fyrir að ráða aðeins fyrirsætur sem uppfylla ákveðin skilyrði. Ofurfyrirsætur með línur eins og Jessica Rabbit og uppfylla staðalímynd kvenleika, eins og The New York Times orðar það.
Nú virðist fyrirtækið hins vegar á nýrri braut.
„Þegar heimurinn var að breytast vorum við of hæg að bregðast við þeim breytingum,“ sagði Martin Waters, forstjóri Victorias Secret, í febrúar síðastliðnum. „Við þurftum að hætta að gera það sem karlmenn vilja og fara að gera það sem konur vilja.“