Skoðun

Út­lendinga­stefna and­skotans í skjóli Vinstri grænna

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Tveir palestínskir menn voru leiddir í gildru núna í vikunni samkvæmt fréttum, lokkaðir í húsakynni Útlendingastofnunar á fölskum forsendum svo senda mætti þá fyrirvaralaust úr landi.

Þeim var sagt að bólusetningarskírteinin þeirra væru tilbúin til afhendingar og beðnir um að sækja þau en svo læstir inni, handteknir af lögreglu og beittir hörku.

Þarna voru sóttvarnaráðstafanir – helsta verkfærið okkar í samstöðunni gegn veirunni – notaðar sem vopn gegn fólki í viðkvæmri stöðu.

Annar mannanna var strax sendur af landi brott. Hinn þurfti læknisaðstoð eftir meðferðina, var með áverka á höfði, bólginn og marinn, en sendur úr landi núna í morgun.

Stefnan birtist í einstökum málum

Stjórnmálamenn bera stundum fyrir sig að þeir geti ekki tjáð sig um einstök mál. En það er einmitt í einstöku málunum sem stjórnarstefnan birtist svart á hvítu.

Atburðir undanfarinna daga eru birtingarmynd þeirrar hörðu útlendingastefnu sem er rekin á vakt ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.

Við sáum stefnuna líka í verki fyrr í sumar þegar sömu menn voru hraktir á götuna og sviptir fæði og húsnæði með ólögmætum hætti. Og þegar kona langt gengin með barn var rekin úr landi og neydd í 19 klukkustunda flugferð fyrr á þessu kjörtímabili. Í báðumtilvikum var farið á svig við lög að mati eftirlitsaðila eða æðra stjórnvalds.

Útlendingayfirvöld brjóta trekktrekk á rétti umsækjenda um alþjóðlega vernd. Stundum meira að segja af ásettu ráði að því er fram hefur komið í úrskurðum kærunefndar útlendingamála.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur yfirstjórnunar- og eftirlitsskyldur gagnvart stjórnsýslu útlendingamála en grípur ekki í taumana heldur viðheldur hörkunni og leggur fram frumvarp um að herða útlendingastefnuna enn frekar.

Afturhald og stjórnlyndi

Spindoktorar reyna að telja okkur trú um að „frjálslyndið“ hafi orðið ofan á í Sjálfstæðisflokknum í nýafstöðnum prófkjörum, flokkurinn hafi fengið mýkri og nútímalegri ásýnd – en sjá ekki allir í gegnum það?

Það er ekkert frjálslynt við að koma fram við fólk í viðkvæmri stöðu eins og skepnur, ekkert frjálslynt við það þegar stjórnvöld verja ekki frelsi, mannhelgi og réttindi einstaklinga heldur leika sér að þeim eins og köttur að mús.

Á næsta kjörtímabili þarf að vinda ofan af lögleysunni sem viðgengst í stjórnsýslu útlendingamála og taka fyrirkomulagið til rækilegrar endurskoðunar með mannúð og sanngirni að leiðarljósi.

Mannvonskan sem hefur viðgengist gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd undanfarin ár sýnir að núverandi stjórnarflokkum er ekki treystandi til að leiða það verkefni. Við þurfum að lofta út.

Höfundur er þingframbjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×