Skoðun

Nornahamar nútímans

Jóna Guðbjörg Torfadóttir skrifar

Þegar konur stíga fram og tjá sig um kynferðisofbeldi verður sumum mönnum (og stöku konu) á orði að þetta sé ekkert minna en nornaveiðar. Þetta er æði sérkennileg tenging við galdraöldina og þó svo að hugsað sé til yfirfærðar merkingar, því þá er jafnan átt við að veist sé að þeim sem eru með óvinsælar skoðanir. Hvort skyldi þá þessi lýsing eiga betur við þær ofsóknir sem beinast gegn gerendum eða þolendum? Rétt er að það voru nær eingöngu menn ofsóttir á Íslandi á brennuöld en sjaldnast af konum og þar að auki skar eyjan okkar sig nokkuð úr því annars staðar í Evrópu snerust nornaveiðar einkum um að fanga konur til að fleygja á bálið.

Nornir voru gjarna vergjarnar konur sem fóru berrassaðar gandreið á vit djöfulsins, höfðu við hann samfarir og átu pulsur unnar úr óskírðum börnum. Til þess að auðvelda mönnum að hafa upp á þessum galdrakvendum var gefin út handbókin Malleus maleficarum, eða svonefndur Nornahamar, sem kom út árið 1486. Í bók Siglaugs Brynleifssonar, Göldrum og brennudómum, er vísað beint í ritið þar sem segir m.a. um eðli norna að „þær eru sannar lostakirnur [...] og þær eru að eðli lygarar“ (bls. 59).

Þetta viðhorf til kvenna hefur orðið merkilega lífseigt. Enn eru konur taldar ótrúverðugar; þegar þær stíga fram og segja frá því að á þeim hafi verið brotið þá þykir líklegast að þær fari með ósannindi. Þá eimir enn eftir af þeim hugsunarhætti að konan hljóti að hafa freistað mannsins, með klæðaburði eða háttalagi, og hún sé því líkt og hver önnur „lostakirna.“ Þessi afstaða hefur jafnframt leitt til þess að margar konur kenna sjálfum sér um ofbeldið sem þær verða fyrir og þær sitja uppi með skömmina.

Það má vera ljóst að nornaveiðar snerust að mestu um karla að fyrirkoma konum sem þóttu sýna ótilhlýðilega hegðun. Því má vel kalla þær ofsóknir sem konur verða fyrir í dag nornaveiðar. Kommentakerfi netmiðlanna er Nornahamar nútímans og leiðir í ljós að það hefur ekki orðið stór breyting á viðhorfum til kvenna þrátt fyrir að rúm 500 ár séu liðin frá útgáfu ritsins. Það má bara þakka fyrir að nornabrennur séu ekki enn í tísku!

Höfundur er sósíalískur femínisti


Tengdar fréttir

Konur þurfa bara að vera duglegar að vara sig!

Konur þurfa að vara sig utandyra. Fríða Ísberg lýsir þessu býsna vel í smásögu sinni Heim. Þar segir frá því hvað fer í gegnum huga konu sem ákveður að ganga heim af barnum um miðja nótt, því það tekur því ekki að taka leigubíl þennan stutta spöl.

Orð og kyn

Ég hef oft hrifist af ljóðum svonefnds Skerjafjarðarskálds, Kristjáns Hreinssonar. Þau geyma oftar en ekki beitta ádeilu og eru laglega ort. Kristján er maður orða og því fannst mér skjóta skökku við þegar grein hans Blindgötur og bönnuð orð birtist í Stundinni þann 10. júní síðastliðinn.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×