Skoðun

Ekki bruna af stað án brunavarna

Eyrún Viktorsdóttir skrifar

Íslenska sumarið er dásamlegt og töfrandi – svo töfrandi að það fær okkur til að gleyma hinum dimmu vetrardögum. Með fullan tank og fullt skott fyllum við helstu tjaldsvæði landsins og tæmum matvöruverslanir. En áður en heimilið er yfirgefið er að mörgu að huga.

Lokaði ég öllum gluggum? Læsti ég geymslunni? Var sléttujárnið nokkuð í sambandi? Hvað með spjaldtölvuna í herbergi dætra minna, var hún í hleðslu?

Síðan þegar brunað er af stað úr bænum leitar hugurinn gjarnan í „hverju gleymdi ég, ég gleymdi einhverju ég veit það – en hverju?“

Þessi hugsun hverfur síðan við fyrsta strangheiðarlega bensínstöðvar kaffibollann.

Það er gott að fá frí frá eigin hugsunum og það er gott að vera öruggur. Öryggið kemur þó ekki að sjálfu sér og sjaldnast er það alveg upp á tíu. Öryggið þarf nefnilega að hugsa aftur og aftur og það spyr hvorki um stað né stund þar sem hættan getur bankað upp á hvenær sem er og hvar sem er. Öryggið er hringur sem hefur hvorki byrjun né endi en við getum verið skrefinu á undan og unnið með örygginu og þar með aukið það.

Breyttur bíll – húsbíll – tjaldvagn – fellihýsi – hjólhýsi – sumarbústaður – hótel – tjald?

Um liðna helgi áttu sér stað tveir hjólhýsabrunar. Sem betur fer sakaði engan og því mikilvægt fyrir okkur að nota tækifærið og læra af þessum brunum, átta okkur á því hve raunveruleg hættan er þegar ferðavagnar eiga í hlut. Við getum gert betur og því vil ég hvetja alla til þess að bæta brunavörnum á tjékklistann áður en lagt er af stað í ferðalagið.

Hvort sem ferðinni er heitið á næsta tjaldsvæði, í notalegan sumarbústaðinn eða nýjasta hótelið þarf að huga að brunavörnum. Hvort sem þú kemst ferðar þinnar á breyttum bíl, húsbíl eða smábíl þarf að huga að brunavörnum. Þá er gríðarlega mikilvægt að huga vel að öllum gas- og rafmagnstengingum sem kunna að vera til staðar í ferðavögnum sérstaklega.

Eldklár ferðaráð

  • Slökkvitæki skulu vera til staðar í öllum breyttum bílum, húsbílum og ferðavögnum.
  • Hlaðið og yfirfarið slökkvitæki árlega hið minnsta.
  • Reykskynjarar og gasskynjarar eru frábærir ferðafélagar.
  • Sömu reglur gilda um brunavarnir heimilanna og í bústöðum.
  • Kynnið ykkur flóttaleiðir og gerið flóttaáætlun.
  • Verið á varðbergi gagnvart gróðureldum.
  • Staðsetjið hvorki hefðbundin grill, ferðagrill né einnota grill of nálægt mannvirkjum, skjólveggjum eða gróðri.
  • Nauðsynlegt er að prófa gaskútinn og ganga úr skugga að búnaðurinn sé þéttur og rækilega skorðaður.
  • Góð regla er að skrúfa fyrir gaskúta áður en lagt er af stað.
  • Sama á við um rafmagnstengingar – mikilvægt er að yfirfara þær og skorða vel.
  • Farið almennt varlega með opinn eld.
  • Ef eldur kemur upp, hringið strax í 112.

Ekki leyfa eldhættunni að skyggja á sólina, gleðina og fríið. Vertu skrefinu á undan með okkur í sumar og bættu brunavörnum á tjékklistann!

Fleiri góð ráð má finna á vertueldklar.is.

Höfundur er forvarnarfulltrúi brunavarna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×