Matur

Silli kokkur er „Besti götu­biti Ís­lands“ árið 2021

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Silli kokkur var valinn „Besti götubiti Íslands“ árið 2021.
Silli kokkur var valinn „Besti götubiti Íslands“ árið 2021. Götubitahátíð Íslands

Mikið var um dýrðir í Hljómskálagarðinum um helgina þegar Götubitahátíð Íslands fór fram og „Besti götubiti Íslands“ árið 2021 var valinn. Yfir fimmtán þúsund manns mættu á hátíðina.

Keppnin „Besti götubiti Íslands“ var haldin í samstarfi við European Street Food Awards sem er stærsta götubitakeppni í heiminum í dag.

Keppnin er haldin víðs vegar um Evrópu og mun Ísland vera með fulltrúa í lokakeppninni.

Keppt var í þó nokkrum flokkum: Besti grænmetisrétturinn, besti smábitinn, götubiti fólksins, besta framsetningin og síðast en ekki síst „Besti götubitinn 2021“.

Um fimmtán þúsund manns sóttu götubitahátíðina um helgina.Götubitahátíð Íslands

Staðurinn Chikin vann tvo titla: Besti grænmetisrétturinn og besti smábitinn.

Þá vann Just Wingin It - Vængjavagninn titilinn götubiti fólksins.

Það var svo enginn annar er Silli kokkur sem var valinn „Besti götubiti Íslands 2021“.

Í öðru sæti var matarvagninn Reykur BBQ og í þriðja sæti var Just Wingin It - Vængjavagninn.

Dómnefnd skipuðu þau Óli Óla, veitingamaður, Binni Löve, áhrifavaldur, Helgi Svavar, matgæðingur, Shruthi Basapa frá Grapevine og Stefanía Thors, húsmóðir.

Keppnin var haldin í fyrsta sinn árið 2019 og var það grænkeraveitingastaðurinn Jömm sem var fulltrúi Íslands í lokakeppninni sem þá fór fram í Malmö.

Staðurinn Chikin vann tvo titla: Besti grænmetisrétturinn og besti smábitinn.Götubitahátíð Íslands

Tengdar fréttir








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.