Taufatofua vakti fyrst athygli sem fánaberi Tonga á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Hann gekk inn á Ólympíuleikvanginn í Ríó ber að ofan, vel olíuborinn og í einhvers konar pilsi.
Taufatofua var einnig fánaberi Tonga á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 þar sem hann keppti í skíðagöngu.
Að sjálfsögðu var Taufatofua svo mættur á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó í dag, olíuborinn sem aldrei fyrr. Hann bar tongverska fánann inn á ólympíuleikvanginn ásamt Maliu Paseka sem keppir einnig í taekwondo.
Rio 2016
— Olympics (@Olympics) July 23, 2021
PyeongChang 2018
Tokyo 2020
If it ain t broke, don t fix it. #OpeningCeremony #Tokyo2020 pic.twitter.com/wEN8eg08YW
Taufatofua, sem keppir í áttíu kg flokki, mætir til leiks á föstudaginn í sextán manna úrslitum taekwondo keppninnar.
Hinn fjölhæfi Taufatofua er menntaður vekfræðingur. Hann býr í Ástralíu og er sendiherra fyrir UNICEF.
Taufatofua er einn sex fulltrúa Tonga á Ólympíuleikunum í Tókýó. Tonga er eyjaklasi í Suður-Kyrrahafi en þar búa rétt rúmlega hundrað þúsund manns.