Skoðun

Jöfnuður skapar sterkt samfélag

Kjartan Valgarðsson skrifar

Verkalýðshreyfingin hefur frá upphafi barist fyrir bættum kjörum og auknum réttindum á tveimur vígstöðvum: í samningum við atvinnurekendur annars vegar og á alþingi hins vegar. Mikilvægustu vopn launþegasamtakanna í toginu við fjármagns- og fyrirtækjaeigendur eru samstaða og verkföll. Forystufólki verkalýðshreyfingarinnar hefur lengi verið ljós nauðsyn þess að eiga sína fulltrúa á þingi einnig. Framfarir fyrir launafólk nást annars vegar með samningum á vinnumarkaði, hins vegar með lögum og lagabreytingum sem jafnaðarmannaflokkar og sósíalistar ná fram. Saga verkalýðshreyfingar og jafnaðarmanna á 20. öld er saga mikilla sigra og framfara fyrir launafólk og heimili.

Verkalýðshreyfingin og jafnaðarmenn voru sama hreyfingin í upphafi. Forystufólk vissi frá byrjun að berjast þyrfti á báðum vígstöðvum, á götum og á þingi. Jafnvel þó leiðir hafi skilið formlega um miðja öldina hefur eðli hreyfingarinnar ekki breyst. Jafnaðarmenn eru enn fulltrúar launafólks á þingi, framlengdur armur verkalýðshreyfingarinnar. Halda má fram með rökum að bestu samningar og framfaramál verkalýðshreyfingarinnar hafi náðst þegar hún hefur átt sína öflugustu fulltrúa á þingi. Nægir þar að nefna Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, Eðvarð Sigurðsson, Guðmund J Guðmundsson, Jóhönnu Sigurðardóttur, Karl Steinar Guðnason, Björn Jónsson, svo aðeins nokkrir séu nefndir.

Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands berst fyrir bættum kjörum og aðstæðum launafólks og fjölskyldna á Ísland og gegn ofríki hinna ríku, voldugu og öflugu. Samfylkingin er náttúrulegur bandamaður launþegasamtakanna. Fyrir jafnaðarmönnum og verkalýðshreyfingu eru kjarabarátta og kosningabarátta tvær hliðar sama penings.

Alþýðusamband Íslands gaf fyrir nokkru út ritiðÞað er nóg til – Áherslur ASÍ vegna þingkosninganna 2021.“ Jafnaðarmenn geta ekki einungis tekið undir allt sem þar stendur, heldur munum við í Samfylkingunni heyja okkar kosningabaráttu með sömu markmið og ASÍ: Afkomuöryggi fjölskyldna og launafólks, húsnæðisöryggi, sterkt opinbert heilbrigðiskerfi, áherslu á almenna menntun og síðast en ekki síst: Jöfnuð. Jöfnuðurinn er þungamiðja í kosningastefnu ASÍ, hann er það sem önnur markmið byggjast á. Og þar erum við jafnaðarmenn á sama báti og verkalýðshreyfingin.

Höfundur er formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×