Svandís er nýjasti viðmælandinn í hlaðvarpinu 24/7 og í þættinum ræða hún og Beggi Ólafs meðal annars áskoranir framtíðarinnar.
„Það stillir mann inn á mikilvægi þess að berjast fyrir jöfnuði,“ útskýrir Svandís.
„Þegar maður horfir í augun á einhverjum sem er á allt öðrum stað en maður sjálfur þá finnur maður þessa sameiginlegu mennsku. Að megninu til erum við í því sama og það sem hallar á er eitthvað sem á að leiðrétta.“
Það auki skilning og trúna. „Og í raun trúna og skilninginn á mikilvægi þess að það sé jöfnuður og réttlæti í samfélaginu.“
Fólk heldur áfram að elska
Svandís ræddi um COVID-19 og hún segir að allt samfélagið hafi skipt um gír í faraldrinum.
„Við erum búin að endurræsa öll kerfin okkar og allt er komið á nýjan stað.“
Heilbrigðisráðherrann segist meðvituð um að margir eru komnir með nóg og flestir búnir með úthaldið gagnvart þessu. Þetta snúist þó um seiglu og líka ákveðið æðruleysi.
„Að taka því sem að höndum ber eins og gamla fólkið kenndi okkur.“
Þannig njóti maður betur augnabliksins þrátt fyrir þetta leiðinlega baktjald sem er Covid-19.
Fólk heldur áfram að elska þó að það sé Covid. Það heldur áfram að byrja sambönd. Það heldur áfram að eignast börn. Það heldur áfram að læra eitthvað nýtt. Það heldur áfram að tengjast einhverjum og það heldur áfram að gleðjast og hafa gaman og lesa ljóð og gera alls konar hluti þrátt fyrir Covid. Covid bannar okkur ekki það og við látum það ekki banna okkur það.“
Svandís segir mikilvægt að muna þetta líka. Hún telur mikilvægt að við vinnum líka vel í geðheilsunni á næstunni.
Allt verður öðruvísi
„Eftir Covid þá verðum við örugglega að vinna heilmikið úr því að líða þannig að við höfum lifað eitthvað af. Það er ofsalega sterk tilfinning, að við gátum þetta. Þó að við vitum ekki nákvæmlega hvar við verðum stödd þegar þar að kemur. En við verðum örugglega að horfast í augu við það að við gengum nærri okkur. Við gengum nærri ákveðnum einstaklingum og fólki og það sem við munum koma til með að vinna með er að hluta til ákveðin úrvinnsla í geðheilsu og öllu því. Við þurfum að hafa augun á boltanum. Við getum ekki sagt að við klárum þetta og svo allt eins og ekkert hafi gerst. Það verður ekki þannig. Allt verður öðruvísi.“
Sviðasultan besta snakkið
Í þættinum spurði Beggi um það hvort heilbrigðisráðherrann eigi einhverja óvinsæla skoðun. Svandís var nokkuð viss um að það myndu ekki margir fylgja henni þegar hún sagði að sviðasulta væri besta snakkið.
„Guðni forseti talaði um ananasinn á pizzuna og það var stórmál, alþjóða pólitískt mál. Óvinsæl skoðun, ég held að sko, að ef ég myndi segja að sviðasulta væri besta snakkið sem þú getur boðið upp á ef þú ætlar virkilega að gera vel við, þá held ég að það myndu ekki margir fylgja mér. Ef ég er ein og fer í Melabúðina og ég ætla gera virkilega vel við mig þá er það sviðasultan. Hún er geggjuð.“
Í þættinum ræðir Svandís heilbrigðismál, heimsfaraldra, áskoranir framtíðarinnar, æðruleysi, öndun, líf og dauða, sköpunargleði Íslenskunnar, ást, samskipti, ójöfnuð, augnsamband og svo margt margt fleira. Þú finnur þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan, Spotify, helstu hlaðvarpsveitum og á Youtube.