Stýrivextir eru nú 1,0 prósent eftir að þeir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig í maí. Seðlankinn birtir ákvörðun sína um hvort stýrivextir hækki, lækki eða haldist óbreyttir næstkomandi miðvikudag.
Hagfræðingar Íslandsbanka telja að vaxandi óvissa um efnahagshorfur til skemmri tíma vegna delta-afbrigðis Covid-19 vegi og þeirrar bylgju sem því hefur fylgt vegi líklega þyngra en versnandi skammtíma verðbólguhorfur í mati peningastefnunefndar bankans.
Í greiningu Íslandsbanka kemur einnig fram að þó að hækkun stýrivaxta sé ólíkleg í næstu viku sé líklegt að Seðlabankinn muni stíga eitt 0,25 prósentustiga hækkunarskref fyrir áramót.
Verði faraldurinn þrálátur muni það seinka stýrivaxtahækkunum
Þetta sé að því gefnu að úr óvissu dragi með haustinu og að delta-afbrigðið reynist ekki verulegur dragbítur á bata ferðaþjónustunnar og hagkerfisins.
„Hvort það verður í október eða nóvember ræðst væntanlega af því hversu hratt skyggnið batnar um nærhorfur í efnahagslífinu. Nóvemberhækkun er þó líklega nærtækari kostur því þá reiðir bankinn aftur fram þjóðhags- og verðbólguspá auk þess sem skýrari mynd verður þá vonandi komin á framgang faraldursins, “segir í greiningunni.
Þá reiknar Íslandsbanki einnig með að vextir Seðlabankans hækki um 0,25 prósentur í hverjum ársfjórðungi næstu tvö ár, þannig að fyrir árslok næsta árs verði stýrivextir 2,0 prósent. Þetta sé þó háð nokkurri óvissu og komi verulegt bakslag í efnahagsbata vegna þrálátari kórónuveirufaraldurs muni það seinka þessu ferli.