Viðskipti erlent

Engar við­ræður fyrr en Trump fellir niður tolla

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á ríkisstjórnarfundi í gær. Kínverjar segjast opnir fyrir viðræðum um viðskiptasamband ríkjanna en fyrst þurfi Trump að fella tolla á kínverskar vörur úr gildi.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á ríkisstjórnarfundi í gær. Kínverjar segjast opnir fyrir viðræðum um viðskiptasamband ríkjanna en fyrst þurfi Trump að fella tolla á kínverskar vörur úr gildi. hvíta húsið/MOlly Riley

Ráðamenn í Kína segjast vera að skoða tilboð frá Bandaríkjamönnum um viðræður vegna umfangsmikilla tolla sem Donald Trump hefur beitt á kínverskar vörur. Kínverjar segja þó að viðræður geti ekki hafist fyrr en ríkisstjórn Trumps felli niður tolla og sýni þannig að þeir hafi í alvöru vilja til viðræðna.

Eins og frægt er hefur forseti Bandaríkjanna sett 145 prósenta toll á vörur frá Kína og almennan tíu prósenta toll á allar vörur sem fluttar eru til Bandaríkjanna. Þar að auki hefur Trump sett tolla á ál, stál og bíla og heitið því að setja tolla á hálfleiðara og lyf.

Hann hefur einnig boðað umfangsmikla tolla á ríki sem selja meira til Bandaríkjanna en þau kaupa en þeim tollum var frestað um níutíu daga, eftir að þeir voru fyrst boðaðir.

Kínverjar hafa sett 125 prósenta tolla á bandarískar vörur.

Embættismenn í Bandaríkjunum og Trump sjálfur hafa haldið því fram að viðræður við Kínverja séu yfirstandandi. Trump hefur meðal annars sagt að hann hafi fengið símtal frá Xi Jinping, forseta Kína, en því hafa Kínverjar alfarið neitað. Þeir hafa sagt að engar viðræður um tollana og viðskiptasamband ríkjanna hafi farið fram.

Þessi nýjustu ummæli frá viðskiptaráðuneyti Kína gefa til kynna að viðræður geti hafist en eins og áður segir hafa Kínverjar ákveðin skilyrði. Stærsta skilyrðið er það að tollar á kínverskar vörur verði felldir niður. Viðræður muni ekki hefjast fyrr.

„Ef Bandaríkin leiðrétta ekki ranga einhliða beitingu tolla, þýðir það að Bandaríkin hafa ekki einlægan vilja til viðræðna og mun það skaða enn frekar traust milli ríkjanna,“ segir í yfirlýsingunni frá ráðuneytinu, samkvæmt frétt New York Times.

Wall Street Journal hefur eftir talsmanni viðskiptaráðuneytisins að afstaða Kínverja sé skýr.

„Ef þið viljið berjast, munum við berjast til hins síðasta. Ef þið viljið tala eru dyr okkar galopnar.“

Fyrst þyrftu tollarnir þó að hverfa.

Trump hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn til að lækka tolla á vörur frá Kína. Hann sagði þó seinna meir, í síðustu viku, að hann ætlaði ekki að fella niður tolla fyrr en Kínverjar lúffuðu. Í áðurnefndri yfirlýsingu frá viðskiptaráðuneyti Kína er minnst á að Trump hafi sagt ýmislegt hingað til en aðgerðir hans hafi ekki verið í takt við ummæli hans.

NYT segir ráðamenn í Kína ekki vilja að Xi og Trump tali sín á milli um ástandið. Kínverjar óttast að Trump gæti snúist hugur og svikið samkomulag sem þeir myndu gera, eða smána Xi með einhverjum hætti, á svipaðan hátt og Trump gerði við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í febrúar.

Tollar Trumps virðast þegar hafa haft mikil áhrif á framleiðendur í Kína og hagkerfi ríkisins. Pöntunum til kínverskra fyrirtækja hefur fækkað mjög mikið.

Ráðamenn í Peking hafa alfarið kennt Bandaríkjamönnum um ástandið og reynt að undirbúa þjóðina fyrir langvarandi viðskiptaátök. Kínverjar hafa einnig biðlað til annarra þjóða heimsins um að standa í hárinu á Bandaríkjamönnum.

„Þegar heimurinn stendur saman, eru Bandaríkin eingöngu lítill strandaður bátur,“ sagði í myndbandi utanríkisráðuneyti Kína birti fyrr í vikunni.

Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa einnig biðlað til annarra ríkja um að takmarka innflutning frá Kína.


Tengdar fréttir

Fagnaði fyrstu hundrað dögunum í Hvíta húsinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði því í gærkvöldi að hann hefur nú verið hundrað daga við völd í Hvíta húsinu. Trump kom fram á fjöldasamkomu í Michigan-ríki þar sem hann og stuðningsmenn hans fóru yfir þau mál sem hann hefur komið í verk á síðustu mánuðum.

Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að koma til móts við bílaframleiðendur þar í landi og reyna að milda áhrif tolla hans á starfsemi þeirra. Þannig vill hann gefa þeim meiri tíma til að flytja framleiðslu aftur til Bandaríkjanna en Trump ætlar þó að halda háum tollum á innflutta bíla og bílaíhluti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×