Ákvörðun stjórnar KSÍ Hörður Felix Harðarson skrifar 3. september 2021 11:30 Málefni knattspyrnumannsins Kolbeins Sigþórssonar hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga. Upphaf umræðunnar er að rekja til þess að kona sem kveðst hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu landsliðsmannsins á árinu 2017 steig fram. Afleiðingarnar eru þekktar. Formaður KSÍ sagði af sér og síðar öll stjórnin. Áður en til afsagnar stjórnar KSÍ kom tók hún ákvörðun um að taka Kolbein Sigþórsson út úr landsliðshópnum. Fram hefur komið að þjálfarar liðsins, sem hafa það hlutverk að ákveða hverjir skipi landsliðshópinn hverju sinni, höfðu ekkert með þessa ákvörðun að gera. Áhrif þessarar umræðu eru hins vegar ekki bundin við Ísland. Ákvörðun stjórnar KSÍ um að nafngreina Kolbein og taka hann út úr landsliðshópnum, vegna þessa 4 ára gamla atviks, hefur leitt til mikillar umfjöllunar um Kolbein í erlendum miðlum. Víðast hvar er rætt um alvarleg ofbeldis- eða kynferðisbrot enda lítið vitað um eðli ætlaðra brota. Þá hefur komið fram að atvinnurekandi Kolbeins, IFK Gautaborg, líti málið alvarlegum augum og þar ytra hefur verið ákall um að samningi við leikmanninn verði rift. Konan sem steig fram, og hefur farið mikinn í fjölmiðlum, lýsti því svo að lögmaður á vegum KSÍ hafi haft samband við hana og boðað hana til fundar með meðlimum stjórnar KSÍ til að ganga frá „þagnarskyldusamningi“. Vakti þetta mikla athygli enda án nokkurs vafa fréttnæmt ef einhver á vegum sambandsins hefði gegnt þessu hlutverki. Síðar kom fram hjá umræddri konu að undirritaður hafi að líkindum verið sá lögmaður sem í hlut átti. Í þessari frásögn er hins vegar ekki eitt sannleikskorn. Undirritaður átti aldrei í samskiptum við konuna, var ekki að vinna fyrir KSÍ í þessu máli, boðaði ekki til fundar með stjórnarmanni KSÍ og bauð henni ekki á nokkrum tímapunkti „þagnarskyldusamning“. Þessi framsetning var hins vegar óneitanlega meira fréttaefni en sannleikurinn. Kolbeinn Sigþórsson lét frá sér yfirlýsingu í vikunni, í tilefni af umfjöllun konunnar, sem er að öllu leyti sannleikanum samkvæm. Umrædd kona, og vinkona hennar, lögðu fram kæru til lögreglu vegna ætlaðrar háttsemi Kolbeins á skemmtistað. Kolbeinn tók þá kæru alvarlega, eðli málsins samkvæmt, og leitaði aðstoðar undirritaðs. Minni hans og upplifun af atvikum þetta kvöld var talsvert önnur en kvennanna tveggja. Hann sýndi hins vegar ábyrgð og átti fund með konunum þar sem þær lýstu sinni upplifun. Hann sýndi því skilning og baðst innilegrar afsökunar á sínum þætti í málinu. Þá varð hann við öllum kröfum kvennanna um greiðslur og málinu var lokað í sátt og samlyndi. Lögreglan felldi málin tvö niður í kjölfarið. Nú rétt um 4 árum frá umræddu atviki stendur Kolbeinn frammi fyrir því að vera því sem næst útskúfaður í samfélaginu. Stjórn KSÍ hefur gripið til þeirrar fordæmalausu ákvörðunar að taka fram fyrir hendur þjálfara liðsins og banna þeim að velja Kolbein til landsliðsverkefna. Á sama tíma er Kolbeinn í sínu besta formi, eftir margra ára erfið meiðsli, og var kominn hingað til lands til að leggja sitt af mörkum. Ákvörðunin hefur sem fyrr segir vakið athygli víða um heim og Kolbeinn, sem er atvinnumaður í knattspyrnu, stendur frammi fyrir því að missa hugsanlega lífsviðurværi sitt. Er þetta raunverulega það þjóðfélag sem við viljum lifa í? Er það rétt og eðlilegt að einstaklingar séu fordæmdir og útskúfaðir með þessum hætti, án dóms og laga? Átti Kolbeinn að bregðast öðruvísi við á sínum tíma eða er það einfaldlega svo að ferill knattspyrnumanna sé á enda við hvers kyns hugsanlegar misfellur eða ásakanir? Það er mat undirritaðs að þessi ákvörðun stjórnar KSÍ hafi verið einstaklega misráðin en eflaust hefur sú geðshræring sem einkennt hefur alla umræðu í þjóðfélaginu undanfarna daga haft þar mikil áhrif. Jafn þarft og sjálfsagt og málefnið er þá verður að gæta þess að jafnt umræða sem þær ákvarðanir sem teknar eru, og varða mikilsverð réttindi einstaklinga, séu teknar faglega og af yfirvegun. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein KSÍ Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Varalitur á skattagrísinum Helgi Brynjarsson Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 3/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson Skoðun Þegar líða fer að jólum Ísak Hilmarsson Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir Skoðun Við vitum alveg upphafið Guðný Níelsen Skoðun Hingað og ekki lengra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vitum alveg upphafið Guðný Níelsen skrifar Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 3/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varalitur á skattagrísinum Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Við eigum ekki efni á vonleysi né uppgjöf Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Kafli eitt: Tómlæti Íslendinga Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Þegar líða fer að jólum Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Meistaragráða í lífsreynslu Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld, Óskar á heima hér! Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Dvel þú í draumahöll Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson skrifar Skoðun Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Samstaða, kjarkur og þor Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi, brostið kerfi Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller skrifar Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason skrifar Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Góð vísa... Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu? Einar Magnússon skrifar Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar