Andrés Jónsson samskiptafulltrúi SaltPay segir að búið sé að greiða úr meirihluta vandans en að einhver truflun gæti verið á þjónustunni enn. Hann biðst afsökunar og þakkar biðlundina fyrir hönd fyrirtækisins. Hann segir þeirra besta fólk vinna í því að laga kerfið.
Andrés segir truflanirnar orsakast af svokallaðri DDoS-árás en slík árás felst í því að netkerfi fyrirtækisins fær tímabundið yfir sig gríðarlegan fjölda beiðna úr mörgum ólíkum áttum.
Hann segir ekki komið í ljós hvort árásinni sé beint sérstaklega að SaltPay.
Vísi hafa borist símtöl frá veitingamönnum í kvöld sem hafa verið í miklum vandræðum vegna truflana á greiðslumiðlunarþjónustu. „Heyrðu, ég verð að fara að slökkva elda,“ sagði einn þeirra og skellti á.