Skoðun

Hugsum sjálfstætt – Nýtum kosningaréttinn

Arnar Þór Jónsson og Vigfús Bjarni Albertsson skrifa

Hefurðu ekki áhuga á að tala um stjórnmál? Nennirðu því ekki? Finnst þér að ekki megi ræða um stjórnmál við vini, ættingja eða á vinnustað? Við setjum þessar línur á blað til að vara við því að við vanrækjum stjórnmálin. Charles de Gaulle orðaði sambærilega hugsun með eftirfarandi hætti: „Stjórnmál eru of alvarlegt viðfangsefni til að eftirláta þau stjórnmálamönnum einum“.

Ertu of upptekin(n) til að mæta á kjörstað? Finnst þér ekki skipta máli hvaða menntastefna er lögð skólastarfi til grundvallar, hvað við borgum í skatta og hvernig skattfé er ráðstafað, hvaða vaxtarskilyrði atvinnulífið býr við, hvaða atvinnumöguleika við höfum, hvernig heilbrigðiskerfið er skipulagt, hvaða reglur gilda um framleiðslu matvæla o.s.frv.

Blasir ekki við, þegar við hugsum út í það, að stjórnmálin gegnsýra allt okkar daglega líf?

Skattgreiðslur eru mál sem kjósendur ættu að láta sig varða, því hér er um að ræða fjármuni sem teknir eru beint úr launaumslagi okkar. Hefurðu reiknað út hversu stór hluti tekna þinna fer í skatta? Hvers konar skatta erum við að greiða? Hvað vinnum við stóran hluta ársins í þágu ríkisins? Hversu stóran hluta vinnudagsins?

Hverjir hafa mest um það að segja hvernig þessum fjármunum okkar (sköttunum) er ráðstafað? Stjórnmálamenn auðvitað. Á hverju einasta ári þenst regluverkið út. Kjörnum fulltrúum er ætlað að hafa mest áhrif á þróun og innihald þessara reglna. Á hverju ári bætast við alls konar kröfur um framleiðslustaðla, sem hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir fyrirtæki og neytendur. Stjórnmál ráða því hvaða öryggiskröfur eru gerðar, hvaða reglur gilda um ráðningar í störf, hvernig skipulagsmálum er háttað, samgöngum og hvaða kröfur eru gerðar til húsbygginga o.fl.

Stjórnmál eru allt í kringum okkur. Fréttir snúast að miklu leyti um stjórnmál og lögin eru afsprengi pólitískrar umræðu. Framtíð lýðræðisins og lýðveldisins er háð því að við sýnum stjórnmálunum áhuga, látum til okkar taka á þeim vettvangi, tökum þátt í flokksstarfi, veitum stjórnmálamönnum aðhald, tjáum skoðanir okkar, hugsum sjálfstætt. Án alls þessa verður lýðræðið siðlausu stjórnarfari að bráð. Það viljum við ekki.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá upphafi lagt áherslu á að efla sjálfstæði einstaklinganna innan samfélagsins með sanngirni og lífsgæði að leiðarljósi. Þessum markmiðum verður best náð með því að tryggja frelsi fólks til að beita hugsun sinni og kröftum innan leyfilegra takmarka, sjálfum sér og öðrum til hagsbóta. Lýðræðið hvílir á þeim grunni að frjálsir, þroskaðir og sjálfstæðir einstaklingar nýti kosningaréttinn skynsamlega. Atkvæði þitt skiptir máli. Ekki kjósa bara eitthvað.

Arnar Þór skipar 5. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi og Vigfús Bjarni skipar skipar 6. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×