Skoðun

Vindum ofan af ný­frjáls­hyggjunni

Gunnar Smári Egilsson skrifar

Í stuttu máli er saga nýfrjálshyggjunnar þessi:

1. Skattar eru lækkaðir á hin ríku með loforði um að við það myndi kakan stækka og ríkissjóður í raun fá meiri pening.

2. Það gekk ekki eftir. Ríkissjóður safnaði skuldum og þá var það lagt til að ríkið seldi eigur sínar til að grynnka á þeim. Einkavæðingin hófst.

3. Enn var halli á ríkissjóði og þá var boðaður samdráttur á opinberri þjónustu til að draga úr hallanum, hagræðingakrafa var þetta stundum kallað en réttnefni er sveltistefna.

4. Þetta dugði ekki til og þá var sett á gjaldtaka fyrir opinbera þjónustu, farið að rukka sjúklinga, nemendur og aðra sem áður nutu gjaldfrjálsrar grunnþjónustu.

5. Samhliða þessu dró ríkið að sér hendurnar í mikilvægum málum á borð við húsnæðismál, einkavæddi félagslega kerfið að hluti og lét restina grotna.

6. Lífeyri eftirlaunafólks og öryrkja var haldið niðri svo lífskjör þessara hópa drógust aftur úr kjörum almennings.

7. Þrátt fyrir sölu eigna, samdrátt í þjónustu og gjaldtöku, og aðgerðarleysi ríkisvaldsins í húsnæðismálum, var enn halli á ríkissjóði. Þá var skattar á almenning hækkaðir, lágtekjufólk og millitekjufólk.

8. Almenningur sat eftir með hærri skatta og gjaldtöku fyrir veikari opinbera þjónustu. Hin ríku sátu eftir með lægri skatta og höfðu sölsað undir sig eignir og auðlindir almennings.

Þetta er söguþráðurinn í meginatriðum, um hvernig þessi heimska stefna braut niður samfélögin í okkar heimshluta. Við þessu er aðeins eitt ráð; að vinda ofan af nýfrjálshyggjunni.

8. Við þurfum að endurheimta völd, eignir og auðlindir almennings.

7. Við þurfum að lækka skatta á almenning, mest á lágtekjufólk og fólk með miðlungstekjur.

6. Við þurfum að bæta lífskjör eftirlaunafólks, öryrkja og annarra lágtekjuhópa.

5. Við þurfum að endurreisa félagslega húsnæðiskerfið.

4. Við þurfum að innleiða gjaldfrjálsa grunnþjónustu.

3. Við þurfum að stöðva sveltistefnuna og fjármagna sómasamlega heilbrigðis- og menntakerfin og öll grunnkerfi samfélagsins.

2. Við þurfum að stöðva alla einkavæðingu og tilflutning eigna og auðlinda almennings til hinna fáu ríku.

1. Við þurfum að skattleggja hin ríku, færa skattkerfið til þess sem var fyrir innleiðingu nýfrjálshyggjunnar.

Þetta er í stórum dráttum tilboð Sósíalistaflokks Íslands til kjósenda fyrir Alþingiskosningarnar á laugardaginn næsta. Tilboðið er um að drepa nýfrjálshyggjuna, ekki um að reyna að siða hana, milda hana eða bæta fyrir hluta af skaðanum sem hún hefur valdið og er enn að valda; heldur um að drepa hana og urða.

Nýfrjálshyggjan er skrímsl sem ekki er hægt að lifa með. Það hefur heldur ekkert upp á sig fyrir venjulegt fólk. Við fáum ekkert út úr því að gefa þessu skrímsli lausan tauminn og leyfa því að gleypa allt sem mikils virði er og eyðileggja samfélagið sem almenningur hafði mikið fyrir að byggja upp.

Þetta er okkar samfélag. Við eigum að endurheimta það 25. september.

Höfundur er félagi í Sósíalistaflokknum og er í fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×