Senn líður að kosningum til Alþingis, kosningar í kjölfar fordæmalausra tíma í sögu þjóðarinnar. Undanfarið eitt og hálft ár hefur gildismati okkar verið snúið á haus. Það sem þótti óhugsandi áður er norm dagsins í dag. Það sem þóttu sjálfsögð réttindi, að gera það sem fólk vildi í dagsins önn og í fríum, þykir nú eðlilegt að okkur sé skammtað líkt og um munaðarvöru væri að ræða. Frelsi okkar á aldrei að vera umsemjanlegt.
Þrátt fyrir þessar fordæmalausu skerðingar eru þær hvergi á dagskrá kosningabaráttunnar. Í lok ágúst sagðist formaður eins stjórnarflokksins hvorki óttast dóm sögunnar né dóm kjósenda og ekki heldur að kórónuveiran yrði að kosningamáli. Þetta eru athyglisverð orð í ljósi þeirra fórna sem landsmenn hafa mátt færa á altari kórónuveirunnar. Við eigum að láta sem ekkert sé. Svo virðist sem enn ein kúlan hafi séð dagsins ljós; Draumakúlan. Eitt framboð sker sig þó úr; Ábyrg framtíð. Við viljum ekki vera í neinni kúlu, heldur ætlum við að vera í kúlulausum raunveruleika. Við viljum splundra þessari kosningakúlu með þremur ófrávíkjanlegum loforðum:
- Endum fárið. Allri valdbeitingu hætt. Leyfum snemmmeðferðir og beitum stýrðri vernd. Bóluefnatilraunir barna lúti reglum um lyfjatilraunir.
- Gagnsætt uppgjör. Öll vafaatriði fái úrskurð dómstóla, gagnsæ rannsókn gerð á skaða sóttvarnaraðgerða og brotlegir látnir sæta ábyrgð.
- Eflum tjáningarfrelsið. Fólk ráði til hvaða fjölmiðils eða menningarefnis útvarpsgjaldið renni.
Haldið áfram þrátt fyrir aðvaranir þriggja lækna
Seinni part ágústs birtust nokkrar greinar í Morgunblaðinu þar sem fjallað var um bólusetningar vegna kórónuveirunnar. Tveir hjartalæknar vöruðu þar við því að sprauta börn vegna þess að það gæti valdið varanlegum skaða á hjartavöðvanum sem kæmi oft ekki í ljós fyrr en að mörgum árum liðnum. Viku síðar birtist grein í sama miðli eftir heimilislækni þar sem einnig var varað við þessum bólusetningum barna vegna kórónuveirunnar. Það breytti engu, haldið var áfram eins og ekkert hefði í skorist og fólk boðið í Laugardalshöllina með bros á vör í ˶bólusetningardiskó˝.
Það vita það allir sem vilja, að mikið þarf til svo læknar finni sig knúna til að fjalla um slíka hluti. Íslenskur almenningur á eftir að átta sig á því að hann var vélaður í tilraunasprautur og allar sóttvarnaraðgerðir voru hluti þeirra vélráða. Íslensk stjórnvöld tryggðu sér 1,4 milljón skammta af bóluefnum strax í upphafi. Ennfremur voru sóttvarnaraðgerðirnar á skjön við alla þá þekkingu sem við höfum öðlast í faraldsfræði í gegnum tíðina. Má því nefndur flokksformaður bæði óttast dóm sögunnar og dóm kjósenda. Í ljósi alls þessa er bara einn raunveruleiki til, að merkja með x-i við Y, Ábyrga framtíð nema fólk vilji halda áfram með kúlu-samfélagið.
Höfundur er frambjóðandi í þriðja sæti í Rvk.-N fyrir Ábyrga framtíð.