Skoðun

Tökum okkur tíma

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Það eru örfáir dagar í kosningar og kosningabaráttan er farin að hverfast um styttri og skýrari skilaboð um sífellt einfaldari loforð.

Við erum öll jafn sek um þetta sem bjóðum fram. Þetta er bara svolítið í takt við tímana sem við lifum. Vídeóin mega ekki vera lengri en 20 sekúndur, fyrirsagnirnar ekki fleiri en fimm orð, jafnvel bara krónutala. Þetta snýst allt um að ná þó ekki sé nema einu orði í gegn um auglýsingaflóðið eða skrunið niður farsímaskjáinn.

Samt erum við á leið í kjörklefann á laugardaginn þar sem við tökum þátt í að ákveða hvernig landinu verður stjórnað þangað til árið 2025. Það er ansi stór ákvörðun.

Ég ætla að leggja til að við tökum okkur smá tíma til að kynna okkur hlutina almennilega. Tökum okkur tíma til að skoða hvað er að baki því sem er verið að lofa, hvað það þýðir í reynd og hvaða kosti eða afleiðingar það hefur fyrir heildarmyndina. Hlustum eins hlutlaust og við getum á skoðanir úr ólíkum áttum og metum rökin. Tökum okkur tíma til að velta fyrir okkur því sem er haldið fram og fleygt, hvaðan það kemur, hvers vegna það er sagt og hvað það þýðir í reynd.

Tökum okkur tíma til að velta því fyrir okkur hvert við viljum fara og hvernig samfélagi við viljum búa í. Íhugum hvaða aðferðir hafa skilað árangri og hverjar ekki, hvað það er sem hefur skilað okkur samfélaginu eins og það er í dag og hvort við stefnum í rétta eða ranga átt. Hugsum um heildarmyndina og hvort við viljum rífa niður kerfin eða halda áfram að bæta þau og þróa með samfélaginu.

Mín niðurstaða er sú að okkur sé best borgið í opnu og frjálsu lýðræðissamfélagi sem leggur áherslu á að kraftur, samheldni og vinnusemi skili okkur öllum auknum lífsgæðum og velferð. Ég er á því að umbyltingar kerfa séu varasamar án umhugsunar um heildarafleiðingar eða til hvers kerfunum var komið á. Ég trúi því að heimurinn verði seint fullkominn en að við höfum í áratugi stefnt í átt að betra, farsælla og réttlátara samfélagi. Þess vegna hef ég valið að helga krafta mína Sjálfstæðisflokknum. Ég hvet þig auðvitað til að kjósa hann líka, en fyrst og fremst til að taka þér tíma áður en þú gengur inn í kjörklefann.

Höfundur er í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×