Streymisveitan Twitch sérhæfir sig í útsendingu rafíþrótta en á síðunni geta iðkendur eða áhugamenn streymt tölvuleikjaspilun sinni í beinni útsendingu. Veitan nýtur mikilla vinsælda en um þrjátíu milljón manns heimsækja vefinn daglega.
Í gagnalekanum má, ásamt tekjuupplýsingum, einnig finna frumkóða (e. source code) streymisveitunnar. Samkvæmt frétt Wired geta slíkar upplýsingar auðveldað öðrum tölvuþrjótum að stela viðkvæmum gögnum notenda.
Segir samfélag Twitch „ógeðslegt, eitrað lastabæli“
Tölvuþrjóturinn birti gögnin á vefsíðunni 4chan og segir hafa ráðist á Twitch til þess að stuðla að aukinni samkeppni milli streymisveita. Þá segir hann samfélag Twitch vera „ógeðslegt, eitrað lastabæli“. Þrjóturinn segir lekann þann fyrsta og gefur þannig til kynna að búast megi við frekari gögnum um streymisveituna.
Stjórnendur streymisveitunnar hafa staðfest tölvuárásina á Twitter en gefa ekki upp nánari upplýsingar. Aðilar með aðgang að gögnunum vilja meina að í lekanum séu einnig upplýsingar um lykilorð notenda síðunnar. Þeir hvetja notendur Twitch að breyta lykilorðum sínum hið snarasta.