„Í fyrsta skipti í langan tíma sem ég segi þetta“ Atli Arason skrifar 21. október 2021 21:25 Ólafur Ólafsson var að vonum sáttur með sigurinn í kvöld. Vísir/Eyþór Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, var að vonum ánægður með sigurinn gegn KR í kvöld í þriðju umferð Subway deildarinnar. Sigurinn í kvöld var fyrsti sigur Grindavíkur á KR á heimavelli í tæp fjögur ár en Grindavík vann leikinn með 10 stigum, 90-80. „
Ég er sáttur með frammistöðuna. Þetta verður í fyrsta skipti í langan tíma sem ég segi þetta en ég var virkilega ánægður með frammistöðuna í þriðja leikhluta. Við komum sterkir út úr hálfleiknum og vorum bara allt öðruvísi en við höfum verið undanfarin ár,“ sagði Óli í viðtali við Vísi eftir leik. Það hefur verið í umræðunni undanfarið hvað Grindvíkingar hafa verið slakir í þriðja leikhluta í leikjunum sínum. Í seinustu tveimur leikjum Grindavíkur tapaði liðið þriðja leikhlutanum með 8 stigum gegn Þór Akureyri og með 11 stigum gegn Val. Það var heldur betur viðsnúningur á því í kvöld en Grindavík vann þriðja leikhluta gegn KR-ingum með heilum 18 stigum, 28-10. „Þetta er búið að vera krísa, við höfum alltaf verið lélegir í þriðja leikhluta. Alveg sama þótt við séum 20 stigum yfir í hálfleik þá ná lið okkur alltaf í þriðja leikhluta. Við vorum staðráðnir í því núna að þegar við vorum undir með 8 í hálfleik að mæta bara tilbúnir í þriðja og vera bara svona ‘bully‘ og taka á þeim og sjá hverju það myndi skila okkur. Það skilaði okkur miklu.“
Subway-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Er von á öðru meistaraplani frá Baldri? Strákarnir á skólabekk fyrir Ungverjaleik Kyrie Irving vill spila með Áströlum á Ólympíuleikunum Sjá meira