Greinin birtist í morgun og er afar vegleg. Stuart James, sem skrifaði greinina ásamt Stefáni Snæ, gerði sér ferð til Íslands fyrir leikinn gegn Armeníu í undankeppni HM og ræddi við fjölda fólks um storminn sem hefur geysað um KSÍ og karlalandsliðið vegna meintra brota leikmanna þess.
Meðal þeirra sem rætt er við í greininni er Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Hann staðfestir að ný gögn hafi komið fram í máli Arons Einars og Eggerts.
Þeir hafa verið sakaðir um að hafa nauðgað konu eftir landsleik Íslands og Danmerkur í Kaupmannahöfn haustið 2010. Konan sagði sögu sína á samfélagsmiðlum í vor en nafngreindi ekki leikmennina.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók nýverið aftur upp rannsókn á meintum brotum Arons Einars og Eggerts. Í grein The Athletic staðfestir Ævar Pálmi að lögreglan fari nú yfir nýjar upplýsingar sem fram hafi komið.
„Við höfum opnað málið að nýju. Okkur hafa borist nýjar upplýsingar. Lögin heimila að mál verði tekin upp að nýju vegna sérstakra ástæðna. Við þurfum góðar ástæður og höfum þær. Nýjar upplýsingar hafa komið fram í dagsljósið. Við höfum rætt við fjölda fólks,“ sagði Ævar Pálmi.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var viðtalið tekið fyrir tæpum tveimur vikum. Ævar Pálmi sagði í samtali við fréttastofu í gær að lögregla myndi ekkert tjá sig um gang mála í rannsókninni.
Aron Einar og Eggert hafa báðir sent frá sér yfirlýsingar þar sem þeir hafna því að hafa brotið á konunni. Lögmaður Arons Einars vísaði í þá yfirlýsingu þegar The Athletic setti sig í samband við hann.
Þar fordæmdi Aron Einar ákvörðunina um að velja hann ekki í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Armeníu og Liechtenstein í þessum mánuði. Hann sagðist hafa verið settur til hliðar vegna „krafna sem byggist á óljósum orðrómi“. Aron Einar sagðist jafnframt vera saklaust fórnarlamb nýrrar útilokunarmenningar innan KSÍ.
Í yfirlýsingu sinni, sem birtist á föstudaginn, sagðist Eggert þvertaka fyrir það að hafa brotið á konunni. Hann sagði það „hrikalegt áfall að vera ásakaður um hræðilegt ofbeldisbrot vegna atviks sem var svo sannarlega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjölmiðlum.“