Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að Grímsvatnahlaupið er núna talið hafa tæmt vötnin að mestu en hlaupvatnið rann fram í Gígjukvísl á Skeiðarársandi. Þar sem nokkur dæmi eru um að svona skyndilegur þrýstiléttir vegna lækkandi vatnsborðs hafi hleypt af stað gosi klingdu allar viðvörunarbjöllur í morgun þegar skjálftahrina hófst.

„Stærsti skjálftinn var 3,6, sem er töluvert öflugur skjálfti, sérstaklega miðað við þessa eldstöð. Þannig að við brugðumst við því,“ segir Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur og hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands.
Það var gert með því að hækka viðvörunarstig Grímsvatna vegna alþjóðaflugs úr gulum lit í appelsíngulan.
„Og ætlum að halda því núna líklega í svona sólarhring að öllu óbreyttu. Við erum sem sagt í rauninni bara komin ennþá meira á tærnar varðandi það að þarna geti komið eldgos,“ segir Kristín.
Og það yrði öskugos en síðasta Grímsvatnagos árið 2011 truflaði flugumferð um hríð, bæði hérlendis og erlendis.

Í flugstjórnarmiðstöð Isavia á Reykjavíkurflugvelli eru menn byrjaðir að fara yfir verkferla vegna hugsanlegs goss.
„Við erum alveg á tánum ef það fer af stað. Það myndi gefa okkur heilmikla ösku,“ segir Árni Guðbrandsson, sérfræðingur hjá Isavia ANS, og rifjar upp að Grímsvatnagosið 2011 hafi skilað meiri ösku heldur en Eyjafjallajökulsgosið.
„Við búumst við stóru gosi, ef það kemur. Allavega erum við viðbúnir fyrir það.“
-Þannig að það gæti truflað heilmikið flugumferð?
„Það gæti gert það. Alveg örugglega. Og teygt sig inn til Evrópu, eins og gerðist fyrir tíu árum síðan,“ segir Árni.
Og Veðurstofan er byrjuð að gera öskuspár, bæði fyrir flug og byggðir.
„Askan, hún færi til norðvesturs, ef það kæmi upp gos akkúrat núna,“ segir Kristín, en það þýddi stefnu í átt til Hofsjökuls og Húnaflóa.

Ef eldgos hefst og Grímsvötn fara á rauðan lit yrði allt flug innan 120 sjómílna frá eldstöðinni samstundis bannað og loftrýmið innan hringsins rýmt. Keflavíkurflugvöllur myndi lenda utan hringsins, Reykjavíkurflugvöllur yrði á mörkunum en flugvellirnir á Akureyri og Egilsstöðum yrðu innan hringsins.
„En þetta er kannski bara í tuttugu mínútur, í mesta lagi í klukkutíma. Þetta er bara til að gefa okkur andrými til þess að sjá hvar vindar blása í efri hæðum og hver staðan er. Hversu mikil aska er og annað þessháttar,“ segir Árni.
Um leið og spá um öskudreifingu lægi fyrir yrði flugbanni aflétt. Það yrði síðan ekki lengur í höndum flugumferðarstjóra heldur flugrekenda að ákveða flug, samkvæmt nýjum reglum sem tóku gildi árið 2014.

Athygli vakti um helgina að nýr sigketill hafði myndast í Vatnajökli suðaustan Grímsvatna.
„Það hefur líklega orðið þarna einhver aukning í jarðhita. Það vatn hefur í rauninni bara skolast með hlaupinu og myndað þennan ketil,“ segir Kristín en tekur fram að áformað sé að kanna þetta betur á morgun með flugi yfir sigdældina.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: