Umrætt þriggja mínútna myndbrot er úr heimildarmyndinni Keep Frozen, sem Hulda skrifaði og leikstýrði. Auk hennar voru Hinrik Þór Svavarsson og Helga Rakel Rafnsdóttir handritshöfundar myndarinnar. Myndin kom út árið 2016 en var frá árinu 2018 notuð í sýningu Sjóminjasafnsins, og notuð þar í tvö ár.
Fram kemur í dómnum að einhverjar viðræður höfðu átt sér stað á milli Helgu Rakelar, handritshöfundar og framleiðanda myndarinnar, og Sagafilm, verktaka fyrir Reykjavíkurborg um kaup á myndefninu. Þá hafði starfsmaður Reykjavíkurborgar verið í samskiptum við Helgu Rakel um afnot af myndefninu. Hafði starfsmaðurinn sent Helgu tölvupóst í júlí 2018, mánuði eftir að sýningin á Sjóminjasafninu opnaði, þar sem um væri að ræða tíu ára samning um notkunarrétt á myndefninu.
Taldi myndefnið ekki í notkun þar sem engir samningar voru gerðir
Samningar um greiðslur fyrir myndefnið og eiginlega staðfestingu á notkunarrétti Reykjavíkurborgar lágu þó aldrei fyrir. Segir Hulda Rós í stefnunni að hún hafi ekki verið meðvitun um notkun Sjóminjasafnsins á myndefninu fyrr en í mars 2020. Hún og Helga Rakel hafi verið í samskiptum við Reykjavíkurborg og Sagafilm „fyrir löngu síðan“ en síðan hafi Sjóminjasambandið ekki haft samband til að klára að semja um greiðslu.
Þær hafi ekki vitað af því að myndefnið hafi verið nýtt enda hafi þær aldrei heyrt meira frá borginni um málið.
Myndstef, Myndhöfundasjóður Íslands, fékk umboð frá aðstandendum myndarinnar til að semja við Reykjavíkurborg um sáttgreiðslur og var sent sáttatilboð til borgarinnar í maí í fyrra um greiðslu 600 þúsund króna til að ganga frá málinu, sem borgin hafnaði. Miðaði Myndstef þar við opinbera gjaldskrá Ríkisútvarpsins. Þrátt fyrir að hafa ekki samþykkt sáttaboðið greiddi borgin félaginu Dóttirdóttir, í eigu Huldu Rósar, 158 þúsund krónur.
Stefndi Hulda borginni þegar tilraunir til sátta báru ekki árangur.
Niðurstaða dómsins var sú að Reykjavíkurborg skyldi greiða Huldu Rós 350 þúsund krónur auk dráttarvaxta vegna málsins.