Verið er að leggja lokahönd á uppsetningu tækjabúnaðar í Ármúla, þar sem rannsóknirnar munu fara fram en þar eru nú þegar framkvæmdar veirufræðirannsóknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítala.
„Það sem hefur kannski verið stærsta áskorunin er mönnun en við erum núna með fólk í viðtölum,“ segir Maríanna Garðarsdóttir, forstöðumaður rannsóknarþjónustu Landspítalans, um undirbúninginn.
Að rannsóknunum munu til að byrja með starfa einn reyndur frumuskoðari sem starfaði áður við frumurannsóknir hjá Krabbameinsfélagi Íslands og þrír sérfræðilæknar. Einn þeirra er frumumeinafræðingur sem verður þjálfaður í skoðun leghálssýna en hinir tveir hafa þegar reynslu.
Þá hefur þegar einn meinafræðingur verið ráðinn sem hefur þjálfun um áramótin.

Sýnunum deilt á milli Íslands og Danmerkur
Sérfræðilæknarnir munu sinna frumurannsóknunum í hlutastarfi og takmörkuð mönnun fyrstu mánuðina er ástæða þess að aðeins helmingur sýna verður rannsakaður hérlendis til að byrja með.
Landspítalinn er þó vel í stakk búinn til að sinna stærsta þætti verkefnisins, það er að segja HPV-greiningum, en það er gert með sama tækjabúnaði og hefur verið notaður við greiningar Covid-19.
Að sögn Maríönnu er hins vegar ekki mælt með því að sýni séu HPV-greind á einum stað og frumuskoðuðu á öðrum og því mun Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu deila þeim í tvennt og mun helmingur fara til Landspítala og helmingur út til Danmerkur.
Þar sem vélarnar hér heima annars vegar og í Danmörku hins vegar taka ólík sýnaglös, verður að sjá til þess fyrirfram að helmingur sýna sé tekinn með þeirri tegund sem notuð er hér og helmingur með þeirri tegund sem notuð er í Danmörku.
Tvöfalt gæðaeftirlit
Maríanna segir Landspítalann hafa átt mjög gott samstarf við embætti landlæknis og Samhæfingastöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu en fyrirkomulag skimananna verður þannig að konur munu fara í sýnatöku hjá heilsugæslunni eða kvensjúkdómalæknum, spítalinn sjá um rannsóknirnar og embætti landlæknis, sem heldur utan um svokallaða skimunarskrá, sjá til þess að svara konum í gegnum Heilsuveru.
Gæðaeftirlit verður með þeim hætti að ákveðinn fjöldi sýna verður endurskoðaður innanhúss á Landspítalanum en Háskólasjúkrahúsið í Þrándheimi og Equalis í Svíþjóð skoða hluta sýna þar sem greinast frumubreytingar, til að staðfesta að verið sé að greina þær og flokka rétt.
„Við erum bara mjög sátt við það hvernig tekist hefur til í þessum undirbúningi því þetta er náttúrulega alltaf flókið að koma af stað nýrri starfsemi,“ segir Maríanna. Hún segir vissulega uppi miklar áskoranir á öllum sviðum innan spítalans en „við teljum okkur vera komin á þann stað að geta sinnt þessu með sóma,“ segir hún.