Veltu upp ábyrgð kennara á bólusetningu barna í löngu bréfi Árni Sæberg skrifar 8. janúar 2022 13:17 Arnar Þór Jónsson er lögmaður samtakanna Frelsi og ábyrgð. Vísir/ÞÞ Varaþingmaðurinn og lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson sendi langt opið bréf fyrir hönd samtakanna Ábyrgð og frelsi þar sem kennarar, meðal annarra, voru spurðir hvort þeir vildu bera ábyrgð á bólusetningu grunnskólabarna ef allt færi á versta veg.
Bólusetning grunnskólabarn á höfuðborgarsvæðinu hefst í Laugardalshöll á mánudag. Upphaflega stóð til að bólusetja börnin innan veggja skólanna. Þær áætlanir gengu ekki eftir vegna manneklu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áður en tilkynnt var um að bólusetningin færi fram í Laugardalshöll sendi varaþingmaðurinn og lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson opið bréf fyrir hönd samtakanna Ábyrgð og frelsi á fjölmarga, þar á meðal Félag grunnskólakennara. Þá er bréfið og stílað á foreldra og aðstandendur allra barna á Íslandi. „Eftirfarandi línur eru ritaðar í tilefni af fréttaflutningi þess efnis að „undirbúningi fyrir kórónuveirubólusetningar barna á aldrinum 5-11 ára“ sé að ljúka og fyrirhugað sé að sprauta börn með þessum efnum í skólum landsins, íþróttamiðstöðvum eða öðru húsnæði á vegum sveitar- og bæjarfélaga,“ segir í inngangi bréfsins. Áhyggjur af einelti Því næst er bólusetning í grunnskólum sögð gagnrýniverð, meðal annars með vísan til persónuverndar. Samtökin höfðu áhyggjur af því að með ráðstöfuninni yrði öllum ljóst hvaða börn væru bólusett og hver ekki. „Börn gætu skipst í fylkingar og þau ósprautuðu lent utangarðs eða upplifað sig óhrein eða hættuleg. Þannig gætu þau orðið út undan í frímínútum, leikjum eða orðið fyrir einelti,“ segir í bréfinu. Þá er fullyrt að möguleg skaðsemi bóluefna sé ekki fullrannsökuð eða óumdeild. „Af því leiðir að enginn getur síðar meir firrt sig ábyrgð með vísan til fákunnáttu eða upplýsingaskorts. Börn eiga að njóta vafans. Á fimmtudag sendi Lyfjastofnun frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingar, um að bóluefni gegn Covid-19 væru einhvers konar tilraunalyf, voru kveðnar niður. Gagnrýna tilgang bólusetningar Þá telja samtökin ótækt að börn séu bólusett til þess að vernda aðra hagsmuni en heilsu þeirra sjálfra, það er að hindra útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. „Ekki á að gera börn ábyrg fyrir heilsu annarra og alls ekki að gera þau smeyk við mannleg samskipti. Allar líkur eru á að sprautaðir smiti jafnt og ósprautaðir.“ Í Pallborðinu á Vísi í gær ræddu sérfræðingarnir Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir og Ingileif Jónsdóttir, prófessor í læknisfræði, bólusetningu barna og tilgang hennar. Þau sammældust um það að börn væru bólusett í þeim tilgangi að vernda þau gegn Covid-19 sjúkdóminum og afleiðingum hans. „Það eru margir einmitt sem hafa svolítið verið að halda því fram að þessi ákvörðun sé tekin til að stoppa smitið út í samfélaginu en það er ekki þannig. Við veljum alltaf að bólusetja börnin til þess að verja þau og þann aldurshóp fyrir smitunum,“ sagði Valtýr. Ætlar þú að bera ábyrgð? „Munt þú, stofnunin, fyrirtækið, heilbrigðisstofnunin, leikskólinn, skólinn eða staðurinn sem þú vinnur hjá eða veitir forstöðu taka ábyrgð á veikindum og skaðlegum eftirköstum ef foreldrar svara hvatningu þinni um að mæta með börnin í sprautu? Þekkirðu efni Nürnberg-sáttmálans?“ spyrja samtökin Frelsi og ábyrgð. Þar vísa þau til sáttmála um læknisfræðilegar tilraunir á mönnum, sem gerður var í kjölfar seinna stríðs. Tengsl hans við bólusetningar eru harla óljósar. „Við förum fram á að viðtakendur þessa bréfs áriti það með eigin hendi til staðfestingar á móttöku, meðvitaðir um faglega og siðferðilega ábyrgð sína í því samhengi sem hér um ræðir,“ segir í lok bréfs.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Grunnskólar Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira