Skoðun

Opið bréf til Ingu Sæ­land

Sigríður Jónsdóttir skrifar

„Sæl frú Inga Sæland.

Er í alvörunni ekki gerð nein krafa um að það, sem þið á Alþingi látið út úr ykkur í pontu, sé satt og rétt? Þegar þú lætur frá þér frumvarp, sem hefur áhrif á þó nokkuð marga, er þá ekki lágmarkskrafa að þið hafið kannað allar hliðar og hafið réttar upplýsingar? Ekki afbakaðar og tilhæfulausar lygar.

Við skulum bara horfast í augu við það að þér er nákvæmlega sama um þessar hryssur. Þér er alveg sama þó það þurfi að slátra þeim flestum.

Heldur þú að þetta séu einhverjir einnota hlutir? Ég veit hvað þær heita, hvernig þær eru á litinn, hvernig skapgerð þær hafa. Hvað varðar þig líka um það þó maður liggi andvaka á nýjársnótt með áhyggjur af merunum; hvort þær hafi ætt yfir margar girðingar eitthvað út í loftið, af því að einhverjir vanvitar telja það skyldu sína að skjóta upp flugeldum. En þér er alveg sama, því þú ert dýraníðingur.

Mér er ekki sama um þessar merar, mér þykir vænt um þær og margar hafa fylgt mér í mörg ár. Ég er ekki dýraníðingur þó ég taki blóð úr þessum merum og við sem erum í þessu flest, reynum að hugsa eins vel um þær og við getum.

Þú þykist líka vera talsmaður fátækra. Bændur eru flestir fátækir og nú, þegar allt hækkar í verði, þá verður enn erfiðara að búa. Við erum að framleiða matvæli og við þurfum tekjur eins og aðrir til að lifa af.

Nú þegar þú ætlar að reyna að taka af okkur þennan tekjustofn, varstu þá búin finna einhverjar lausnir handa okkur? Koma einhverjar aðgerðir svo við getum haldið áfram? Nei, ég hélt ekki. Þér er nefnilega sama um fátæka bændur. Þú ert hræsnari.“

Þau orð sem hér að framan eru rituð, eru orð einhvers kollega míns í bændastétt. Ég er sammála hverju orði sem sá ókunni bréfritari skrifaði þér, Inga Sæland, því þau orð eru sönn og ég geri þau að mínum.

Ég er sá sem sendi þér þetta bréf.

Ég er þeir sem öfgasamtökin Animal Welfare Foundation hundeltu og njósnuðu um sumar eftir sumar.

Ég er sá sem er nafngreindur í áróðursmyndbandi AWF.

Ég er allir þeir sem þú hefur sakað um dýraníð.

Ég er þeir karlar, þær konur og þau ungmenni sem þú níðist á með málflutningi þínum.

Höfundur er bóndi og hrossasmali Arnarholti.


Tengdar fréttir

Á blóðslóð

Fjölmiðlarnir, sem fara með fjórða valdið, eru komnir alvarlega út af sporinu. Undanfarið hafa þeir gerst ginningarfífl nokkurra lýðskrumara (Ingu Sæland og félaga) og öfgamanna (útlendra dýraverndarsamtaka og innlendra nettrölla).




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×