Samstarfið mun snúast um að þróa saman nýstárlega rafhlöðutækni sem er ætlað að knýja áfram næstu kynslóð rafsportbíla frá Lotus. Drifrafhlaðan á að nýtast fyrst í nýjan rafsportbíl sem skissa var sýnd af samhliða kynningu félaganna á samstarfinu.
Britishvolt er leiðandi í drifrásarafhlöðuframleiðandi í Bretlandi ásamt því að stunda umfangsmiklar rannsóknir og þróun sem skapar hugverkaverkaverndaða tækni. Ætlunin er að rafhlaðan í Lotus bílnum verði fljót að hlaða sig og að varðveislu geta hennar verði hámörkuð án þess að hún vigti mjög mikið.
Lotus hefur nýlega fjárfest fyrir 100 milljónir sterlingspunda í verksmiðjum sínum á Bretlandseyjum. Þar sem meðal annarra eru framleiddir Evija hreinn últrarafbíll og Emira sport bíllinn.
„Lotus er spennt fyrir samstarfinu með Britishvolt. Við ætlum í sameiningu að þróa drifrafhlöðu sem sýnir hvers megnugir rafsportbílar frá Lotus eru. Þetta eru fyrstu skrefin í spennandi vegferð í átt að nýjum rafsportbíll frá Lotus og enn eitt skrefið í átt að sjálfbærni og endurnýtanlegri raforku sem geymd er í rafhlöðum,“ sagði Matt Windle stjórnandi Lotus.
„Á síðasta ári tilkynntum við að við ætluðum að framleiða hreinan rafbíl og í fyrsta mánuði ársins kynnum við annað stórt skref í þeirri vegferð. Á komandi mánuðum munum við kynna Type 132, nýjan hreinan rafjeppling frá Lotus og við höfum staðfest að þrír nýir rafbílar til viðbótar eru væntanlegir,“ bætt Windle við.