Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum en mikill viðbúnaður er vegna óveðursins. Í dag funduðu almannavarnir í annað sinn með sérfræðingum Veðurstofunnar, viðbragðsaðilum, ábyrgðaraðilum raforku, fjarskipta og samgangna. Einnig voru á fundinum fulltrúar úr aðgerðastjórnun almannavarna um land allt.
Foreldrar beðnir um að fylgjast með skólahaldi
Eins og í gær var farið yfir veðurspár og til hvaða viðbúnaðar þarf að grípa þegar óveðrið skellur á. Miklar líkur eru taldar á foktjóni og ófærð innan hverfa, að sögn almannavarna og líkt og í gær er fólk hvatt til þess að ganga vel frá lausum munum og verktakar beðnir að ganga vel frá framkvæmdasvæðum. Vegagerðin hefur ákveðið að loka vegum vegna veðursins.
Foreldrar eru beðnir að fylgast með hvernig skólahaldi verður háttað en nú þegar hafa einhverjir skólar ákveðið að hafa lokað á morgun.
Hvassast í efri byggðum
Líkt og fram hefur komið er Veðurstofa Íslands búin að færa veðurviðvörun sína upp á rautt fyrir höfuðborgarsvæðið. Spáð er suðaustan roki eða ofsaveðri, 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni. Hvassast í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins og á Kjalarnesi.
Almannavarnir geta virkjað þrjú viðbúnaðarstig: Óvissustig, hættustig og svo neyðarstig. Hættustig er virkjað þegar fólki, umhverfi eða byggð er ógnað, þó ekki svo alvarlega að um neyðarástand sé að ræða
Hægt er að fylgjast með framvindu veðursins á vef Veðurstofu Íslands, vegum og lokunum hjá Vegagerðinni og sömuleiðis ölduhæð.