1.712 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og yfir tíu þúsund manns eru nú í einangrun. Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar á milli daga og eru 53 inniliggjandi en voru 47 í gær. Þar af eru tveir á gjörgæslu og hvorugur í öndunarvél.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir álagið töluvert á spítalanum og því sé til skoðunar að aflétta einangrun einkennalausra starfsmanna. Í gær voru yfir þrjú hundruð starfsmenn spítalans voru frá vinnu vegna covid.
„Með svona mikla útbreiðslu er álag á allar sjúkrastofnanir í landinu, sem er ástæðan fyrir því að við erum með einhverjar takmarkanir enn þá,“ sagði Willum að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Að óbreyttu segir hann standa til að aflétta öllum takmörkunum þann 25. febrúar, eða á föstudaginn í næstu viku.
„Mér sýnist sjá fyrir endann á þessu en að sjálfsögðu, ef það er ástæða til að gera þetta fyrr, skoðum við það jöfnum höndum og endurmetum stöðuna.“
Allherjar aflétting þýðir að almenn einangrun vegna veirunnar falli einnig úr gildi.
„En þá er bara minna á það, að bara eins og að öllu jöfnu þegar fólk veikist, þarftu að jafna þig og fara varlega. Eftir því sem afléttingarnar verða meiri og hömlurnar minni höfðum við meira til ábyrgðar einstaklingsins um að fara vel með sig,“ segir Willum.