Ekki er vitað hvað fellst í samkomulaginu en í sameiginlegri yfirlýsingu til fjölmiðla segir að upphæðin sem Andrés muni greiða Giuffre sé trúnaðarmál, samkvæmt frétt New York Times.
Til viðbótar við það ætlar Andrés að gefa fé til góðgerðasamtaka sem standa vörð um fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar.
Andrés var í síðasta mánuði sviptur titlum sínum innan bresku konungsfjölskyldunnar.
Lögmaður Giuffre sagði í síðasta mánuði að skjólstæðingur sinn myndi ekki sætta sig við sátt í málinu og að hún vildi leiða sannleikann í ljós fyrir sig og önnur fórnarlömb Epsteins.
Sjá einnig: Lögmaður Giuffre segir hana ekki munu sætta sig við fjárhagslega sátt
Samkvæmt Sky News segir í dómsskjölum vegna sáttarinnar að Andrés segist sjá eftir tengslum sínum við Epstein. Talsmenn hans segja að hann muni ekki tjá sig frekar um sáttina.
Giuffre gerði á árum áður samkomulag við Epstein sem snerist í grófum dráttum um að hún félli frá máli gegn honum eftir að hún sakaði hann um kynferðisofbeldi og kynlífsþrælkun. Það náði til Epsteins og annarra mögulegra sakborninga.
Dómari í New York komst þó nýverið að því að samkomulagið stæði ekki og leyfði málaferlum að fara fram. Þeim er nú lokið.
Epstein svipti sig lífi í fangelsi þann 10. ágúst 2019, þá 66 ára gamall. Það var eftir að hann var ákærður fyrir mansal og önnur brot. Ghislaine Maxwell, kærasta hans og aðstoðarkona, var nýverið sakfelld fyrir mansal.