Þetta staðfestir Guðríður Lára Þrastardóttir, lögfræðingur og teymisstjóri teymis um málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd hjá Rauða krossinum, í samtali við Vísi.
Guðríður Lára segist ekki vita hvernig dómsmálaráðuneytið sjái fyrir sér framhaldið og því geti hún ekki staðfest að Rauði krossinn muni taka þátt í hugsanlegu útboði á lögbundnum verkefnum ráðuneytisins. „Já, það stendur til. En auðvitað veltur það á skilmálunum í útboðinu.“ segir hún.
Óvíst hvort starfsemin verði boðin út
Að sögn Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort verkefnið verði boðið út yfir höfuð. Þjónustan sé ekki útboðsskyld og unnið sé að útfærslu í samstarfi við ríkisstjórnina.
Guðríður Lára segir Rauða krossinn hins vegar hafa fengið þær fregnir frá ráðuneytinu að ráðist yrði í útboð. „Við ætlum að taka þátt í útboðinu ef við mögulega getum,“ segir hún.
Í samningnum var að finna ákvæði um eins árs framlengingu en ráðuneytið ákvað að framlengja ekki og því mun hann renna út 30. apríl næstkomandi. Að sögn Jóns eru miklar breytingar í vændum á starfsemi í tengslum við málefni útlendinga og því hafi verið ákveðið að framlengja ekki.
„Hluti af verkefnum þessa samnings er að flytjast til annars ráðuneytis. Þeir hafa sem sagt verið bæði með félagsþjónustu við hælisleitendur, sem fer nú til annarra, félagsmálaráðuneytisins, og líka talsmannaþjónustuna sem heyrir undir okkur. Þannig það var ákveðið að endurskoða hlutina núna,“ segir hann í samtali við Vísi.
Ekki hægt að greiða lögfræðingum laun án samnings
Sem áður segir hefur öllum lögfræðingum á skrifstofu Rauða krossins verið sagt upp störfum vegna þess að samningurinn rennur út að tveimur mánuðum liðnum.
„Það þurfti náttúrulega að gera það af því við erum ekki með neinn samning eftir 30. apríl. Þannig að ef einhver annar fær verkefnið í útboðinu, þá hættir Rauði krossinn með þessa þjónustu 30. apríl og þar með er ekki hægt að greiða lögfræðingunum laun,“ segir Guðríður Lára.