Innlent

Ger­semar og að­skota­hlutir fundist í veggjum Kaffivagnsins

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þetta er meðal þess sem hefur fundist í veggjum Kaffivagnsins.
Þetta er meðal þess sem hefur fundist í veggjum Kaffivagnsins. aðsend

Nýr eigandi Kaffivagnsins segir ýmsar gersemar allt að 70 ára gamlar hafa fundist í veggjum húsnæðisins sem gengur nú í endurnýjun lífdaga

Yfirhalning stendur nú yfir í húsnæði Kaffivagnsins. Nýr eigandi segir að um hálfgerðan draum sé að ræða fyrir fyrrverandi fastagest og að það séu forréttindi að gera kennileitið upp.

„Kaffivagninn er að fá nýja hnjá- og mjaðmaliði og verða aðeins nútímavæddur eins og maður segir. Annars er bara sama gamla góða stemmningin og allt slíkt áfram og góður matur en örlitlar breytingar. Ég er mjög þakklátur húseigendum að taka þetta verk upp í fangið á mér og stýra því alla leið. Ég á fjögur yndisleg börn, ég ætla vona það að Kaffivagninn verði númer fimm.“

Svona mun Kaffivagninn líta út að framkvæmdum loknum.aðsend

Kaffivagninn var stofnaður árið 1935 og um sögufrægt hús að ræða enda ýmislegt í húsinu komið til ára sinna. Framkvæmdaaðilar ráku upp stór augu þegar veggir hússins voru opnaðir en þar leyndust ýmsar fornar gersemar og óvæntir aðskotahlutir.

„Það skemmtilegasta sem við sáum hingað til kom í ljós í gær, það var skriðjökull. Það var þannig að frystiskápurinn hjá okkur, einangrunin í honum var ekki til staðar lengur og þar af leiðandi var ísinn búinn að þjappa sér inn í vegginn. Við erum búin að finna hérna handrit og finna hérna melaglös með nöfnum þekktra listamanna. Ég myndi halda að þetta elsta sem við fundum sé allavega 70 plús. Þetta var texti á blöðum og vafið inn í svona eins og roð eða eitthvað slíkt. Mögulega gamlar uppskriftir.“

Kaffivagninn tekur stakkaskiptum.aðsend

Framkvæmdir gangi vel og er vonast til að opna í maí. Ýmsir beri tilfinningar til hússins.

„Ég er örugglega að fá svona 300 símtöl á dag frá fólki sem ég þekki ekki neitt. Þau segja bara: Hvað ertu að gera vinur minn? Afhverju? Ég tek þessi símtöl og tek þetta á kassann og ég er búinn að bjóða þessu fólki hingað í heimsókn þegar við opnum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×