Lærisveinar Aðalsteins taplausir í seinustu fjórum | Bjarki markahæstur í tapi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. febrúar 2022 21:51 Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten eru á góðu skriði í Evrópudeildinni í handbolta. Getty/Andreas Gora Íslendingar voru í eldlínunni í tveimur leikjum sem var rétt í þessu að ljúka í Evrópudeildinni í handbolta. Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten unnu góðan tveggja marka sigur gegn Sporting, en Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo töpuðu gegn Benfica.
Heimamenn í Kadetten byrjuðu af miklum krafti og náði fljótt fimm marka forystu í stöðunni 8-3. Þeir misstu forskoti þó frá sér og fóru einu marki undir inn í hálfleikinn. Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik, en undir lokin fóru heimamenn að síga fram úr. Þeir náðu fimm marka forskoti á ný þegar stutt var til leiksloka, en gestirnir skoruðu seinustu þrjú mörk leiksins. Niðurstaðan varð því tveggja marka sigur Kadetten, 26-24. Sigurinn lyfti Kadetten upp fyrir Sporting í D-riðli, en liðið situr nú í fjórða sæti með átta stig eftir sjö leiki. Liðið hefur ekki tapað í seinustu fjórum leikjum sínum í Evrópudeildinni, og þar af eru þrír sigrar. Þá máttu Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo þola fimm marka tap gegn Benfica, 35-30. Bjarki Már Elísson var markahæsti maður vallarins með níu mörk, en það dugði ekki til. Lemgo situr í fjórða sæti B-riðils með átta stig eftir sjö leiki, þremur stigum minna en Benfica sem situr í öðru sæti.
Handbolti Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Dagskráin í dag: Rashford, Bónus deild karla og margt fleira Sport Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Körfubolti Tók hana fjögur ár að skrifa ævisögu Anníe Sport Fleiri fréttir „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Elliði Snær og Andri Már í sigurliðum Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Fyrrverandi þingmaður tekur við formennsku hjá FH Hetja heimsmeistaranna handleggsbrotnaði „Litla höggið í sjálfstraustið“ Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum Lyftu bikarnum fyrir framan þær en hafa síðan ekki unnið Val í þúsund daga Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Sjá meira