Rússar hafa safnað um 150 þúsund hermönnum við landamæri Úkraínu á undanförnum vikum og hafa margir óttast að Rússar hafi ætlað að gera aðra innrás í landið.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands birti í morgun myndband sem á að sýna brottflutning hermanna frá Krímskaga og var það í kjölfar yfirlýsinga um fækkun hermanna á svæðinu í gær.
Sjá einnig: Rússar segjast flytja hluta hermanna sinna frá landamærunum
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, sagði þó í morgun að engin ummerki um fækkun hermanna við landamæri Úkraínu hefðu sést. Hann sagði að þvert á móti virtist sem enn fleiri hermenn væru á leið til landamæranna, samkvæmt frétt Reuters.
Ráðamenn í Bandaríkjunum og Bretlandi hafa tekið undir það.

Þá segja Úkraínumenn að umfangsmikil tölvuárás hafi verið gerð á heimasíður Varnarmálaráðuneytis landsins, banka, og annarra stofnana og að hún sé enn yfirstandandi. Úkraínumenn hafa gefið í skyn að Rússar séu að gera þessa árás en því neita ráðamenn í Kreml.
Rússland gerði innrás í Úkraínu árið 2014 og innlimaði Krímskaga af ríkinu. Þá hafa aðskilnaðarsinnar, sem studdir eru af Rússlandi, lagt undir sig svæði í austurhluta landsins.
Dúman, neðri deild rússneska þingsins, samþykkti í gær ályktun um að Pútín viðurkenndi sjálfstæði þessara svæða í Úkraínu en á undanförnum mánuðum hafa yfirvöld í Rússlandi afhent íbúum þar rússnesk vegabréf.
Rússar hafa í stuttu máli sagt krafist þess að Úkraínu verði meinaður aðgangur að Atlantshafsbandalaginu og að aðildarlöndum í Austur-Evrópu verði vísað úr bandalaginu. Þeim kröfum var fljótt hafnað. Vesturveldin svokölluðu hafa þó sagst tilbúin til viðræðna við Rússa um vopn og viðbúnað í Evrópu.
Pútín sagði frá því í gær, eftir fund með Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, að sá síðarnefndi hefði sagt vestrið opið fyrir viðræðum um eldflaugar í Evrópu, takmarkanir á heræfingum og aðrar öryggisráðstafanir.
Pútín sagðist tilbúin til að ræða þessi málefni en það þyrfti einnig að ræða helstu kröfur Rússlands.
Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar ítrekaði Scholz þá að aðild og möguleg aðild ríkja Austur-Evrópu væri ekki til umræðu. Við það sagðist Pútín að það þyrfti að ræða núna gegnum friðsamlegt ferli.