Rafíþróttir

Framhaldsskólaleikarnir: Heimsóknir í Verzló og MÁ

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Framhaldsskólaleikarnir fara fram þessa dagana.
Framhaldsskólaleikarnir fara fram þessa dagana. Meta Productions

Verzló og MÁ áttust við í fyrstu viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands síðastliðinn fimmtudag þar sem MÁ tryggði sér sæti í undanúrslitum.

Skólarnir hófu leik í FIFA þar sem MÁ sigraði fyrri leikinn 4-1. Liðsmenn Verzló gáfust þó ekki upp og unnu 5-0 stórsigur í seinni leiknum. Verzlingar sigruðu því samanlagt 6-5 og voru komnir með forystu í einvíginu.

Næst var komið að CS:GO, en þar voru yfirburðir MÁ miklir. Liðsmenn MÁ unnu að lokum afar öruggan 16-3 sigur í kortinu Inferno og því allt orðið jafnt á ný í einvíginu.

Það var því allt undir þegar liðin mættust í Rocket League. Þar voru það liðsmenn MÁ sem reyndust sterkari og unnu 2-0 sigur í leik þar sem sigurmarkið kom í framlengingu.

MÁ er því á leið í undanúrslit þar sem að andstæðingur þeirra verður annað hvort Tækniskólinn eða ME.

Á meðan útsendingu stóð voru sýnd innslög þar sem hún Eva Margrét kíkti í heimsókn í skólana og ræddi við keppendur um hin ýmsu mál sem tengjast skólunum þeirra, en heimsóknirnar má sjá í spilurunum hér fyrir neðan.

Klippa: FRÍS: Heimsókn í Verzló
Klippa: FRÍS: Heimsókn í MÁ





×