„Salómonsdómur“ borgarinnar er að stækka einkalóðir í Vesturbæ Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 25. febrúar 2022 15:39 Með því að stækka einkalóðirnar við Einimel í Vesturbæ, þá stækkar almenningsrýmið segir í bókun þeirra Pawels Bartoszek, Alexöndru Briem og Hjálmars Sveinssonar. Ýmsum þykir þetta sérkennileg röksemdafærsla en þá er átt við að miðað við núverandi stöðu; eigendur lóðanna hafa helgað sér land en eiga þó enga lögformlega kröfu á því. vísir/vilhelm/borgsjá Mikil gremja er meðal margra Vesturbæinga vegna fyrirhugaðrar „lausnar“ á lóðadeilu í Vesturbænum, nánar tiltekið lóða sem standa við bakgarð einbýlishúsa við Einimel og svo Vesturbæjarlaugina. Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur vilja leysa áralanga deilu með því einfaldlega að stækka einkalóðirnar.
Deilan hefur staðið lengi en á sínum tíma reistu eigendur húsa við Einimel 22 til 26 girðingu við lóðir sínar sem ganga að verulegu leyti inn á almannarými. Vísir fjallaði um málið á sínum tíma og ræddi þá við Bjarna Brynjólfsson upplýsingafulltrúa borgarinnar. Hann sagði þá að orðalagið að „taka í fóstur“, sem einn eigenda notaði þá um þetta landnám, hafi alltaf verið skýrt að því leyti að það fæli ekki í sér yfirráð af neinu tagi og sérstaklega áréttað að ekki megi girða eða loka svæði af. Afgreiðsla erinda eigenda þess efnis að þeir fái lóðir sínar stækkaðar hefur hingað til verið neikvæð. En nú stefnir í að breyting verði þar á. Í nýlegri fundargerð skipulags- og samkomuráðs Reykjavíkur var lögð fram tillaga á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar. „Í breytingunni felst að lóðarmörk við Einimel 18-26 eru færð út sem nemur 3,1 m og minnkar lóð Vesturbæjarlaugar sem því nemur, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Eflu dags. 27. janúar 2022. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.“ Þó túnið minnki stækkar það samt raunverulega Samkvæmt fundargerðinni virðist veruleg ánægja með þennan Salómonsdóm meðal borgarfulltrúa um þetta en samþykkt var vísa henni til borgarráðs. Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata, sem eru þau Pawel Bartoszek, Alexandra Briem og Hjálmar Sveinsson, lögðu fram bókun: Loftmynd af umræddu svæði. Vesturbæjarlaugin er sunnan við húsin þrjú á Einimel þar sem garðarnir teygja sig samanlagt um þúsund fermetra inn á túnið.Borgarvefsjá „Með þessari breytingu þá stækkar túnið miðað við raunverulega stöðu seinustu áratuga. Töluverðar deilur hafa staðið um girðingar og lóðarmörk á svæðinu og er deiliskipulagstillagan er niðurstaða sátta í þeirri deilu. Ánægjulegt er að sú sátt sé að nást.“ Er þar vísað til þess að þeir sem nú fá lóðir sínar stækkaðar höfðu sumir helgað sér talsvert meira svæði, eða tekið í fóstur eins og þar stendur. Hér má sjá teikningu verkfræðistofunnar EFLU af lóðunum sem um ræðir. Rauða brotna línan sýnir lóðamörk eins og þau eru en sú svarta hvernig þetta verður eftir breytingar. Við þetta stækka lóðirnar um 3,1 metra í eina áttina sem í fermetrum talið slagar hátt í hundrað.EFLA En ánægjan eða sáttin drífur ekki langt út fyrir veggi Ráðhússins ef marka má heitar umræður um þessa tillögu á Facebookhópnum „Vesturbærinn“. Guðrún Jóhannesdóttir vekur máls á þessu og spyr hvort þetta sé lausnin á „deilunni um landtöku íbúa við Einimel 22, 24 og 26? Að stækka bara allar lóðirnar á kostnað almannarýmis?“ Ljóst er að Guðrún telur þetta afar sérkennilega niðurstöðu: „Kannski maður girði bara part af næsta almenningsgarði og eigni sér hann. Aldrei að vita nema maður fái bara að halda honum ef maður þrjóskast nógu lengi við.“ Guðrún gerir ekki ráð fyrir því að margir aðrir en eigendur lóðanna við Einmel 18 til 26 séu sáttur með þessa niðurstöðu. Heimsmet í röksemdafærslu Ólafur Hauksson almannatengill segir í forundran með skírskotun til bókunnar meirihlutans: „Með því að minnka túnið við Vesturbæjarlaug stækkar það!!!! Þetta hlýtur að vera heimsmet í rökfræði.“ Svo dæmi séu tekin af öðrum ummælum, sem eru fjölmörg og leyna þeir sem þátt taka hvergi gremju sinni, þá segir Gestur Rúnarsson Brettingz þetta með miklum ólíkindum. „Ef þetta gengur eftir þá gefur þetta fordæmi og ekkert því til fyrirstöðu fyrir fólk að stækka lóðir hjá sér með einfaldri landtöku.“ Og Guðrún bætir við að ef lóðirnar við Einimel 24 og 26 eru færðar út um 3,1 metra þá bætist 80 fermetrar við lóðirnar. Og munar um minna. Færðu girðinguna út fyrir trén Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Skeljungs, býr á Einimel 18 og hefur látið sig málið varða í fyrri umræðum um málið í Vesturbæjarhópnum á Facebook. Það vakti athygli íbúa í Vesturbænum að girðingin við Einimel 18 og 20 var líka utar en lóðamörk gáfu tilefni til. Einar Örn upplýsti í umræðu í Vesturbæjarhópnum að hann og nágranni hans á Einimel 20 hefðu látið reisa girðinguna fyrir tólf til fimmtán árum. Þessi girðing var reist fyrir tólf til fimmtán árum að sögn Einars Arnar. Hún stendur ytra en sem nemur lóðamörkum. „Sú sem fyrir var, var ónýt og þurfti að endurnýja og við ákváðum að færa hana út fyrir trén, á að giska 2 metra. Sú færsla stækkar garða okkar auðvitað ekkert, en við gerðum þetta því svæðið undir trjánum var jafnan í mikilli órækt, borgin sló grasið að trjánum en svæðið undir trjánum var ekki hirt og fullt af arfa og hundaskít,“ sagði Einar Örn. Þeir grannarnir hefðu ekki séð fyrir sér að þetta truflaði neinn og engar athugasemdir borist. „Ég hef auðvitað tekið eftir umræðum um svæðin innar í götunni en tók það aldrei til mín. Ef þetta veldur einhverjum ágreiningi þá er sjálfsagt að fjarlægja girðinguna hinum megin við trén, en það kemur mér á óvart ef þetta hefur truflað nokkurn.“ 16:20 Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Sundlaugar Skipulag Nágrannadeilur Deilur um Sundlaugartún Tengdar fréttir Þúsund fermetrar sem eigendur þriggja einbýlishúsa hafa girt af Svæðið sem eigendur einbýlishúsa við Einimel 22, 24 og 26 hafa lagt undir sig í leyfisleysi er samanlagt um eitt þúsund fermetrar. 15. október 2018 16:12 Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Sjá meira
Þúsund fermetrar sem eigendur þriggja einbýlishúsa hafa girt af Svæðið sem eigendur einbýlishúsa við Einimel 22, 24 og 26 hafa lagt undir sig í leyfisleysi er samanlagt um eitt þúsund fermetrar. 15. október 2018 16:12