Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar til síðustu fimmtán ára, skipaði efsta sætið á listanum fyrir síðustu kosningar, en hann tilkynnti fyrr í ár að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri.
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi, varaformaður bæjarráðs og formaður fræðslunefndar, sóttist einnig eftir fyrsta sæti á listanum en nú liggur niðurstaða úr prófkjöri flokksins fyrir.
Ásgeir fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið eða um 70 prósent atkvæða. Fulltrúaráð samþykkti endanlegan lista en Kolbrún þáði ekki fjórða sætið, sem henni var boðið. Mosfellingur greinir frá.
„Ég er mjög þakklátur fyrir það sterka umboð sem ég fékk til þess að leiða listann. Ég hlakka til að halda áfram að gera Mosfellsbæ að enn betra samfélagi með því kraftmikla og hæfileikaríka fólki sem mun mynda samheldinn og sterkan lista flokksins í kosningunum í vor,“ segir Ásgeir í samtali við bæjarblaðið Mosfelling.
Eftirfarandi skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ 2022:
1. Ásgeir Sveinsson - bæjarfulltrúi og rekstrarstjóri
2. Jana Katrín Knútsdóttir - hjúkrunar- og viðskiptafræðingur
3. Rúnar Bragi Guðlaugsson - bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
4. Helga Jóhannesdóttir - forstöðumaður
5. Hjörtur Örn Arnarson - landfræðingur
6. Arna Hagalínsdóttir - rekstrar- og fjármálastjóri
7. Hilmar Stefánsson - framkvæmdastjóri
8. Brynja Hlíf Hjaltadóttir - laganemi
9. Helga Möller - söngkona og fyrv. flugfreyja
10. Ragnar Bjarni Zoega Hreiðarsson - flugnemi
11. Davíð Örn Guðnason - lögmaður
12. Júlíana Guðmundsdóttir - lögfræðingur
13. Gunnar Pétur Haraldsson - sölu- og þjónustufulltrúi
14. Kári Sigurðsson - viðskiptastjóri
15. Þóra Björg Ingimundardóttir - sölu- og þjónusturáðgjafi
16. Franklin Ernir Kristjánsson - háskólanemi/þjónn
17. Ragnheiður Ríkharðsdóttir - fyrrv. bæjarstjóri og alþingismaður
18. Alfa Regína Jóhannsdóttir - kennari
19. Davíð Ólafsson - söngvari
20. Elín María Jónsdóttir - húsmóðir
21. Ari Hermann Oddsson - múrari
22. Bjarney Einarsdóttir - athafnakona